Arsenal hlustar á tilboð í Jesus - Tottenham reynir við Gallagher - Liverpool orðað við varnarmann Frankfurt
   sun 26. nóvember 2017 12:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Southampton og Everton: Gylfi í holunni
Gylfi og Rooney á æfingu. Annar þeirra byrjar í dag.
Gylfi og Rooney á æfingu. Annar þeirra byrjar í dag.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem sækir Southampton heim í ensku úrvalsdeildinni í dag. Leikurinn hefst núna eftir klukkutíma, kl. 13:30.

Gylfi var ekki í leikmannahópi liðsins í 5-1 tapi gegn Atalanta í Evrópudeildinni í vikunni, hann var hvíldur þar og snýr aftur í byrjunarliðið hjá Everton í dag.

Samkvæmt liðsuppstillingu Everton á Twitter er Gylfi í holunni með Aaron Lennon og Kevin Mirallas sér við hlið. Domnic Calwert-Lewin, strákurinn ungi, byrjar fremstur þar sem Oumar Niasse er í leikbanni eftir að hafa gerst sekur um leikaraskap.

David Unsworth stýrir Everton áfram í dag, en það hefur gengið illa að finna nýjan stjóra.

Southampton gerir þrjár breytingar á liðinu sem tapaði 3-0 gegn Liverpool um síðustu helgi. Pierre-Emile Hojbjerg, James Ward-Prowse og Charlie Austin mæta í byrjunarliðið.

Hér að neðan eru byrjunarliðin.

Byrjunarlið Southampton: Forster, Soares, Hoedt, Van Dijk, Bertrand, Davis, Hojbjerg, Tadic, Boufal, Ward-Prowse, Austin.
(Varamenn: McCarthy, Yoshida, Long, Lemina, Gabbiadini, Redmond, McQueen)

Byrjunarlið Everton: Pickford, Kenny, Keane, Jagielka, Baines, Gueye, Schneiderlin, Lennon, Gylfi, Mirallas, Calvert-Lewin.
(Varamenn: Robles, Williams, Ramirez, Rooney, Vlasic, Lookman, Baningime)



Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 35 25 5 5 85 28 +57 80
2 Man City 34 24 7 3 82 32 +50 79
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 35 20 7 8 73 52 +21 67
5 Tottenham 34 18 6 10 67 54 +13 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 Chelsea 34 14 9 11 65 59 +6 51
9 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
10 Bournemouth 35 13 9 13 52 60 -8 48
11 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
12 Brighton 34 11 11 12 52 57 -5 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Everton 35 12 8 15 37 48 -11 36
16 Brentford 35 9 8 18 52 60 -8 35
17 Nott. Forest 35 7 9 19 42 62 -20 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner
banner