Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 27. júlí 2015 09:47
Magnús Már Einarsson
Ibrahim Afellay í læknisskoðun hjá Stoke
Mynd: Getty Images
Hollenski kantmaðurinn Ibrahim Afellay er mættur í læknisskoðun hjá Stoke.

Hinn 29 ára gamli Afellay fór frá Barcelona eftir fjögur og hálft ár í herbúðum spænska félagsins.

Á þeim tíma var Afellay einungis níu sinnum í byrjunarliðinu hjá Barcelona.

Á síðasta tímabii var Afellay í láni hjá Olympiakos en hann hafði áður leikið með Schalke.

Stoke hefur í sumar reynt að fá Xherdan Shaqiri frá Inter en nú lítur út fyrir að félagið muni í staðinn krækja í Afellay.
Athugasemdir
banner
banner