Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 27. júlí 2017 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Markovic á leið til Fiorentina
Markovic er á förum frá Liverpool.
Markovic er á förum frá Liverpool.
Mynd: Facebook síða Liverpool
Lazar Markovic hefur fengið leyfi til þess að yfirgefa Liverpool í sumar. Hann er á leið til Fiorentina á Ítalíu.

Serbinn var á láni hjá Sporting Lisabon og Hull á síðasta tímabili og hann er ekki inni í áætlunum Jurgen Klopp, stjóra Liverpool.

Markovic spilaði 45 mínútur í fyrsta æfingaleik tímabilsins hjá Liverpool í 4-0 sigri á Tranmere Rovers. Hann fór hins vegar ekki með liðinu í æfingaverð til Hong Kong, hann var skilinn eftir heima.

Samkvæmt PA Sports þá hefur leikmaðurinn rætt við Fiorentina, en Liverpool vill fá 16 milljónir punda fyrir hann.

Watford hefur einnig áhuga á Markovic, en þeir eru ekki tilbúnir að borga það sem Liverpool biður um.
Athugasemdir
banner
banner