Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 28. janúar 2015 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Juventus kaupir Rugani á undan Arsenal
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur verið að sýna Daniele Rugani, miðverði Empoli, mikinn áhuga í janúarglugganum.

Rugani er 20 ára ítalskur varnarmaður sem hefur verið að gera mjög góða hluti í liði Empoli á tímabilinu og er að brjóta sér leið inn í ítalska landsliðið.

Juventus á helminginn í Rugani og greina bæði Sky Sport Italia og Tuttosport frá því að Juve sé búið að kaupa helming Empoli í leikmanninum á 4 milljónir evra.

Rugani verður hjá Empoli út tímaibilið en fer til Juventus í sumar. Það gæti þó verið að ítölsku meistararnir séu til í að selja varnarmanninn unga til Englands en þá þyrfti Arsenal að greiða væna summu.
Athugasemdir
banner
banner