Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 28. apríl 2016 20:01
Ívan Guðjón Baldursson
Özil: Gæti verið að ég ljúki ferlinum á Englandi
Mynd: Getty Images
Mesut Özil er mjög óákveðinn með framtíðina og segist ekki vera viss hvað hann ætli að gera á næstu árum.

Özil er 27 ára gamall og hefur verið hjá Arsenal í þrjú ár án þess að vinna Englandsmeistaratitilinn.

„Ég mun snúa aftur til Þýskalands einn daginn, fjölskyldan er þar og mér líður alltaf vel þegar ég er í heimalandinu," sagði Özil í viðtali við þýska knattspyrnusambandið.

„Það er svo mikið af möguleikum í boði. Ég ætla ekki að lofa að ég muni spila aftur í Búndeslígunni, eða að ég fari til Tyrklands, en ég er heldur ekki að útiloka það.

„Það gæti líka vel verið að ég ljúki ferlinum bara hér á Englandi."

Athugasemdir
banner
banner
banner