Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. maí 2016 09:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Ashley Williams of hræddur til að horfa á Meistaradeildina
Ashley Williams.
Ashley Williams.
Mynd: Getty Images
Ashley Williams, fyrirliði Wales, segir alla í landinu verða skíthrædda þegar Gareth Bale spilar úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld.

Bale skoraði sjö af 11 mörkum Wales í undankeppni EM og er hann algjör lykilmaður liðsins og er mikil pressa á herðum hans fyrir mótið.

„Ég er búinn að tala við þjálfarann um þetta og við hlóum að þessu. Ég ætla ekki að horfa á leikinn þar sem ég verð skíthræddur í hvert skipti sem hann fer niður meiddur. Allt landið verður smeykt"

„Mig langar ekki einu sinni að tala um möguleikann á að hann missi af mótinu," sagði Williams.
Athugasemdir
banner