Óvíst er hvort Hörður Sveinsson og Jóhann Birnir Guðmundsson verði með Keflavík gegn Víkingi R. í undanúrslitum Borgunarbikarsins á miðvikudag.
Hörður var ekki í leikmannahópi Keflavíkur gegn Val í gær og Jóhann Birnir sat allan tímann á bekknum.
Leikmennirnir hafa báðir verið að glíma við meiðsli og óvíst er hvort þeir verði klárir á miðvikudag.

,,Vonandi verða þeir tilbúnir," sagði Kristján Guðmundsson þjálfari Keflvíkinga eftir leikinn í gær.
,,Við verðum að sjá. Ég hugsa að það séu svona helmings líkur."
Athugasemdir