Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2016 22:18
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Markalaust hjá Villarreal og Sevilla
Mynd: Getty Images
Villarreal 0 - 0 Sevilla

Villarreal og Sevilla mættust í lokaleik 2. umferðar spænska boltans og gerðu markalaust jafntefli.

Alexandre Pato var í byrjunarliði heimamanna en þurfti að fara útaf eftir hálftíma vegna meiðsla.

Gestirnir frá Sevilla hengu mikið á boltanum en heimamenn fengu fleiri og hættulegri færi í leiknum.

Sevilla, sem er búið að vinna Evrópudeildina þrjú ár í röð, er með fjögur stig eftir 6-4 sigur á Espanyol í fyrstu umferð. Villarreal er með tvö stig, eftir jafntefli gegn Granada fyrir viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner