Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 30. júlí 2015 21:32
Alexander Freyr Tamimi
Benítez útilokar ekki frekari leikmannakaup
Rafa Benítez.
Rafa Benítez.
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, þjálfari Real Madrid, útilokar ekki að hann muni bæta við leikmannahóp liðsins.

Madrídingar hafa verið rólegir á markaðnum í sumar, en hafa verið sterklega orðaðir við David De Gea. Benítez neitaði að tjá sig um spænska markvörðinn.

„Við erum með góðan hóp og verðum að vinna með þessa leikmenn. Ef einhver annar kemur er hann velkominn, en hann þarf að vera betri en þeir sem við höfum núna," sagði Benítez.

„Samræðurnar sem ég á við framkvæmdastjórann Jose Angel Sanchez og forsetann eru okkar á milli."'
Athugasemdir
banner