Það eru mörg stór nöfn á lista yfir þá leikmenn hér á landi sem eru að verða samningslausir eftir tímabilið.
Við tókum saman tíu áhugaverða leikmenn sem eru að renna út á samning og eru líklegir til að færa sig um set.
Við tókum saman tíu áhugaverða leikmenn sem eru að renna út á samning og eru líklegir til að færa sig um set.
Guðjón Pétur Lýðsson (Breiðablik) - Háværar sögur um að Guðjón ætli að færa sig um set í vetur og hefur hans fyrrum félag, Valur, verið nefnt.
Brynjar Ásgeir Guðmundsson (FH) - Þessi fjölhæfi leikmaður er líklegur til að vilja fara í lið þar sem hann fær stærra hlutverk og á fast sæti.
Bergsveinn Ólafsson (Fjölnir) - Það er líklegt að stærri félög reyni að krækja í fyrirliða Fjölnis. Mjög öflugur miðvörður og leiðtogi.
Björn Pálsson (Víkingur Ó.) - Býr á höfuðborgarsvæðinu og hefur þurft að keyra á milli. Hefur verið mikið púsluspil hjá Birni sem vill líklega losna við bíltúrana.
Þorsteinn Már Ragnarsson (KR) - Náði ekki að festa sig í byrjunarliði KR. Háværar sögusagnir um að hann sé búinn að ákveða að fara heim í Víking Ólafsvík...
Hilmar Árni Halldórsson (Leiknir) - Hæfileikaríkur leikmaður sem kom að langflestum mörkum Leiknis. Sýndi að hann á heima í Pepsi-deildinni.
Michael Præst (Stjarnan) - Daninn hefur verið orðaður við KR en líklegast er talið að hann snúi heim.
Kennie Chopart (Fjölnir) - Hefur verið hrikalega öflugur hjá Fjölni og ljóst að mörg félög eru tilbúin að njóta þjónustu hans.
Sindri Snær Magnússon (Keflavík) - Enginn Keflvíkingur fann sig í sumar en Sindri hefur sýnt að hann hefur margt til brunns að bera.
Athugasemdir