Willian semur við Gremio (Staðfest)
Brasilíski vængmaðurinn Willian hefur skrifað undir eins árs samning við Gremio í heimalandinu eftir að hafa yfirgefið Fulham í sumar eftir að samningur hans við félagið rann út.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Brasilíski vængmaðurinn Willian hefur skrifað undir eins árs samning við Gremio í heimalandinu eftir að hafa yfirgefið Fulham í sumar eftir að samningur hans við félagið rann út.
Serbneski miðjumaðurinn Milan Aleksic er genginn til liðs við Cracovia í Póllandi frá Sunderland á láni út tímabilið. Það er kaupmöguleiki fyrir Cracovia í samningnum.
Franski miðjumaðurinn Ismael Bennacer er genginn til liðs við Dinamo Zagreb í Króatíu frá AC Milan. Hann fer til liðsins á láni en Fabrizio Romano greinir frá því að það sé kaupmöguleiki í samningnum.
Franska landsliðskonan Grace Geyoro hefur verið keypt til London City Lionesses frá Paris St-Germain fyrir 1,4 milljónir punda (rúmar 232 milljónir íslenskra króna). Hún er þar með orðin dýrasti leikmaður sögunnar í kvennaflokki en kaupin slá met sem stóð yfir í einn mánuð, þegar Orlando Pride í Bandaríkjunum greiddi Tigres UANL 1,1 milljón punda fyrir mexíkóska vængmanninn Lizbeth Ovalle.
Serbneski framherjinn Alexandar Mitrovic er búinn að rifta samningi sínum við Al-Hilal í Sádi-Arabíu og er genginn til liðs við Al-Rayyan í Katar. Mitrovic er þrítugur en hann gekk til liðs við Al-Hilal frá Fulham árið 2023 en hann skoraði 68 mörk og lagði upp 15 í 79 leikjum.
Franski miðvörðurinn Kurt Zouma hefur samið um að leika með rúmenska félaginu CFR Cluj næstu tvö árin.
Sigurður Þór Reynisson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis en liðið er fallið niður í 2. deild. Bjarni Þórður Halldórsson og Elías Hlynur Lárusson voru reknir í síðasta mánuði. Fylkir er í næst neðsta sæti Lengjudeildarinnar með átta stig eftir sautján umferðir af átján og örlög liðsins ráðin. Liðið féll úr Bestu deildinni í fyrra og er nú fallið niður í 2. deild.
Framherjinn efnilegi Dagur Orri Garðarsson hefur gert fimm ára samning við Val. Dagur sem er nýorðinn tvítugur kemur til liðsins frá Stjörnunni í Garðabæ en hann hefur leikið á láni hjá HK í sumar þar sem hann hefur skorað 11 mörk í Lengjudeildinni. Dagur verður áfram hjá HK út tímabilið en samningur hans við Val tekur gildi 1. janúar 2026. Samningur hans við Stjörnuna rennur út eftir tímabilið.
Chelsea hefur lánað enska miðjumanninn Kiano Dyer til hollenska félagsins Volendam út tímabilið.
Lettneska fótboltakonan Olga Sevcova hefur framlengt við ÍBV út næsta tímabil en frá þessu er greint á <i>ÍBVSport</i> í dag.
Kasper Dolberg hefur gengið til liðs við Ajax frá Anderlecht fyrir 10 milljónir evra.
Kelechi Iheanacho hefur samið við skoska stórveldið Celtic. Nígeríski sóknarmaðurinn gerir eins árs samning við liðið, með ákvæði um að framlengja um eitt ár.
Ilkay Gündogan hefur yfirgefið Manchester City í annað sinn og samið við Tyrklandsmeistara Galatasaray á frjálsri sölu.
Svissneski varnarmaðurinn Manuel Akanji er kominn til ítalska liðsins Inter á láni frá Manchester City út tímabilið.
Manchester City hefur tilkynnt komu ítalska markvarðarins Gianlugi Donnarumma frá Paris St-Germain, kaupverðið er um 26 milljónir punda.
Christantus Uche gekk til liðs við Crystal Palace í gærkvöldi á láni frá Getafe. Uche er 22 ára gamall Nígerískur sóknarmaður en hann er sagður vera eftirmaður Eberechi Eze sem gekk til liðs við Arsenal í sumar.
Hinn 24 ára gamli Bryan Gil er genginn til liðs við Girona frá Tottenham fyrir tæpar 9 milljónir punda. Hann gekk til liðs við Tottenham frá Sevilla árið 2021 en náði sér engan vegin á strik hjá Lundúnaliðinu.
Brasilíski markvörðurinn Ederson gengur í raðir tyrkneska félagsins Fenerbahce frá Manchester City. Þessi 32 ára leikmaður var átta ár hjá City og hjálpaði liðinu að vinna enska meistaratitilinn sex sinnum auk þess að vinna Meistaradeildina. Hann hefur einnig unnið FA-bikarinn í tvígang og var í þrennuliði City 2022-23.
Maxwel Cornet er genginn til liðs við Genoa á láni frá West Ham. Cornet er 28 ára gamall Fílbeinsstrendingur en hann þekkir vel til hjá Genoa.
Manor Solomon er genginn til liðs við Villarreal á láni frá Tottenham út tímabilið.