Glugginn í Sádi-Arabíu er enn opinn - Onana, Sterling, Disasi, Santos og Silva orðaðir við félög þaðan
   fim 04. september 2025 11:21
Elvar Geir Magnússon
Dagur Orri í Val (Staðfest) - Klárar tímabilið með HK
Björn Steinar formaður og Dagur Orri.
Björn Steinar formaður og Dagur Orri.
Mynd: Valur
Dagur í treyju Vals.
Dagur í treyju Vals.
Mynd: Valur
Framherjinn efnilegi Dagur Orri Garðarsson hefur gert fimm ára samning við Val. Dagur sem er nýorðinn tvítugur kemur til liðsins frá Stjörnunni í Garðabæ en hann hefur leikið á láni hjá HK í sumar þar sem hann hefur skorað 11 mörk í Lengjudeildinni.

Dagur verður áfram hjá HK út tímabilið en samningur hans við Val tekur gildi 1. janúar 2026. Samningur hans við Stjörnuna rennur út eftir tímabilið.

Var eftirsóttur
„Við erum afar stolt af því að fá Dag Orra til félagsins til næstu ára. Hann er leikmaður sem hefur sýnt einstaka hæfileika, bæði sem markaskorari og leiðtogi á vellinum. Við höfum fylgst með honum lengi og hann hefur sannað það fyrst í 2. deildinni og svo í Lengjudeildinni að hann er alvöru markaskorari. Samningurinn undirstrikar þá stefnu sem við höfum tekið – að fjárfesta í framtíðinni og það er okkar trú að hjá okkur muni Dagur Orri taka mikilvæg skref á sínum ferli,“ segir Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, í fréttatilkynningu frá félaginu.

Björn segir það ákveðna viðurkenningu að Dagur Orri hafi valið að koma í Val en óhætt er að segja að hann hafi verið eftirsóttur af mörgum af stærstu liðum landsins. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net var Dagur með nýtt tilboð frá Stjörnunni auk þess sem KR og Fram vildu fá hann.

„Við höfum stigið stór skref í sumar í þeirri vegferð okkar að styrkja umhverfið og styðja betur við ungt og efnilegt knattspyrnufólk. Við viljum að það sé samkeppni í Val og nú er það undir Degi komið að sanna sig á stóra sviðinu,“ segir Björn Steinar.

Dagur Orri: Stórt skref fyrir mig
Sjálfur var Dagur Orri hæstánægður með samninginn þegar búið var að undirrita að Hlíðarenda í gærkvöldi.

„Þetta er stórt skref fyrir mig að ganga til liðs við klúbb eins og Val. Ég fann það strax á samtölum mínum við félagið að hér er mikill metnaður og fagmennska. Ég varð strax heillaður af því sem mér var kynnt og ég mun svo sannarlega leggja mitt af mörkum til þess að félagið verði áfram í fremstu röð,“ sagði Dagur Orri en faðir hans er Garðar Jóhannsson, fyrrum sóknarmaður Stjörnunnar.

Dagur Orri er á mikilvægum tímapunkti á tímabilinu með HK sem er í harðri baráttu um að komast upp í Bestu deildina. Dagur mun klára það verkefni.

„Með þessum fimm ára samningi sendir Valur skýr skilaboð um langtímastefnu félagsins: að byggja upp sterkan kjarna, efla unga leikmenn og skapa umhverfi sem laðar að sér þá efnilegustu," segir í tilkynningu Vals.
Athugasemdir
banner