Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25090 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.05.2026, 18:48

Schmeichel hættur (Staðfest)

Danski markvörðurinn Kasper Schmeichel hefur lagt hanskana á hilluna eftir farsælan feril en hann tilkynnti þetta í viðtali við <i>TV2</i>.

FRÉTTIR27.05.2026, 17:45

Nuno áfram með West Ham (Staðfest)

Nuno Espirito Santo verður áfram stjóri West Ham á næsta tímabili. Óvissa var um hvort að hann myndi halda áfram með liðið eftir að félagið féll úr úrvalsdeildinni á dögunum. Í tilkynningu félagsins segir að sá portúgalski muni stýra liðinu áfram á næsta tímabili eftir að hafa fundað með forráðamönnum félagsins á mánudag eftir fallið. Báðir aðilar voru með uppsagnarákvæði í samningnum.

FRÉTTIR27.05.2026, 06:00

Rangers krækir í fyrirliða Tómasar Bents (Staðfest)

Rangers hefur gengið frá samningi við fyrirliða Hearts, Lawrence Shankland. Shankland, sem er 30 ára, hefur samþykkt persónuleg kjör og skrifar undir tveggja ára samning til sumarsins 2028, með möguleika á eins árs framlengingu til viðbótar.

FRÉTTIR25.05.2026, 19:30

Allegri rekinn frá Milan (Staðfest) - Vilja fá Iraola

Max Allegri hefur verið rekinn sem stjóri Milan eftir að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni. íþróttastjórarnir Igli Tare og Geoffrey Moncada og framkvæmdastjórinn Giorgio Furlani voru einnig reknir. Liðið tapaði gegn Cagliari í lokaumferðinni í gær og endaði í 5. sæti, stigi á eftir Como. Þetta er annað árið í röð sem liðinu mistekst að vinna sér sæti í Meistaradeildinni.

FRÉTTIR25.05.2026, 17:30

20 mest lesnu fréttir vikunnar - Guardiola orðlaus og FH stútun

Manchester City hefur ákveðið að heiðra Pep Guardiola með því að nefna stúku eftir honum, enginn var heiðraður á Hlíðarenda og FH hefur aldrei byrjað verr. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar.

FRÉTTIR23.05.2026, 21:20

Jonny Evans og Steve Holland fá tveggja ára samninga

Eins og greint hefur verið frá er Manchester United búið að gera tveggja ára samning við Michael Carrick eftir magnaða frammistöðu hans sem bráðabirgðaþjálfari félagsins á seinni hluta enska úrvalsdeildartímabilsins.

FRÉTTIR22.05.2026, 16:30

Alaba yfirgefur Real Madrid (Staðfest)

David Alaba mun yfirgefa Real Madrid í sumar eftir fimm ára veru hjá félaginu. Félagið staðfesti tíðindin fyrr í dag. Hann gekk til liðs við Real sumarið 2021 og hefur síðan þá spilað 131 leik fyrir félagið. Hjá Real vann hann ellefu titla, þar af Meistaradeildina tvisvar og LaLiga tvisvar. Austurríkismaðurinn hefur verið að glíma við mikil meiðsli undanfarin þrjú ár. Stjörnublaðamaðurinn segir mörg félög á höttunum á eftir Alaba fyrst hann er samningslaus.

FRÉTTIR22.05.2026, 10:27

Man City tilkynnir að Guardiola sé að hætta (Staðfest)

Manchester City hefur staðfest að síðasti leikur Pep Guardiola með stjórnartaumana hjá félaginu verður gegn Aston Villa á sunnudag. Undir stjórn Guardiola vann City sautján stóra titla, þar á meðal sex Englandsmeistaratitla á tíu tímabilum. Þá vann hann Meistaradeildina með liðinu. Á hans síðasta tímabili vann City FA-bikarinn og deildabikarinn. <i>„Ekki spyrja mig út í ástæðuna fyrir því að ég er að hætta. Það er engin ástæða, en innst inni veit ég að þetta er rétti tíminn. Ekkert varir að eilífu,"</i> segir Guardiola.

FRÉTTIR22.05.2026, 10:08

Man Utd tilkynnir um nýjan samning við Carrick (Staðfest)

Michael Carrick verður áfram með Manchester United, en hann hefur hafa skrifað undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á að framlengja um eitt ár. Carrick tók við United af Ruben Amorim í byrjun árs, rétti úr kútnum og hefur nú tryggt þriðja sætið. Undir stjórn Carrick hefur United unnið ellefu af sextán leikjum sínum. Úrvalsdeildin tilnefndi sex stjóra sem stjóra tímabilsins og var Carrick einn af þeim. Ekkert lið í efstu deild hefur náð í fleiri stig en United frá því Carrick tók við liðinu 13. janúar, en liðið hefur safnað 36 stigum síðan þá.

FRÉTTIR21.05.2026, 17:56

Borja Iglesias tekur við Völsungi (Staðfest)

Völsungur hefur fundið nýjan aðalþjálfara eftir að Patrick De Wilde var rekinn fyrir rúmum mánuði síðan. Sá heitir Borja Martin Iglesias, hann var síðast partur af þjálfarateyminu hjá unglingaliði Eibar og hefur einnig þjálfað hjá Osasuna.

FRÉTTIR21.05.2026, 10:10

ÍA komið með markvörð - Jón Sölvi snýr aftur (Staðfest)

ÍA hefur fengið markvörðinn Jón Sölva Símonarson frá Breiðabliki á undanþágu vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. ÍA kaupir Jón Sölva af Blikum, en félagið hafði líka reynt að gera það í vetur. Árni meiddist á sunnudag og verður frá næstu sex til átta vikurnar vegna ristarbrots. Þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður og varamarkvörður ÍA, Isak Theodor Eidem, er fæddur árið 2009, fékk ÍA undanþágu hjá KSÍ til að fá markvörð inn utan glugga.

FRÉTTIR20.05.2026, 16:30

Man City gæti misst annan algjöran lykilmann í sumar

Spænska blaðið <i>Marca</I> er með mynd af spænska miðjumanninum Rodri á forsíðu sinni í mogun. Rodri er lykilmaður Manchester City. Blaðið segist hafa heimildir fyrir því að Rodri (1996) vilji fara til Real Madrid vegna þess að Pep Guardiola sé að hætta sem stjóri City. Það verður ekki annað sagt en að þeir tveir séu algjörir lykilmenn hjá félaginu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.