Liverpool hefur áhuga á leikmanni Hoffenheim - Norskur bakvörður orðaður við Man Utd - Real Madrid horfir löngunaraugum til Rodri
   fim 21. maí 2026 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Brentford fær austurrískan miðvörð (Staðfest)
Schuster var í byrjunarliði Salzburg í 3-2 tapi gegn Aston Villa í Evrópudeildinni í janúar.
Schuster var í byrjunarliði Salzburg í 3-2 tapi gegn Aston Villa í Evrópudeildinni í janúar.
Mynd: EPA
Brentford er búið að ganga frá kaupum á bráðefnilegum varnarmanni sem kemur til félagsins úr röðum RB Salzburg.

Jannik Schuster er 20 ára gamall og gerir fimm ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið, með möguleika á auka ári.

Schuster vann sér sæti í sterku byrjunarliði Salzburg á tímabilinu og hefur spilað 20 leiki fyrir yngri landslið Austurríkis, þar af fimm fyrir U21 liðið.

„Ég er virkilega ánægður með að okkur hafi tekist að næla í Jannik. Hann er nú þegar með góða reynslu á háu gæðastigi eftir að hafa spilað með Salzburg. Þetta er mjög efnilegur leikmaður og mér líkar mjög vel við persónuleikann hans. Þetta er metnaðarfullur ungur maður sem mun passa vel við hópinn," segir Keith Andrews þjálfari Brentford.

Schuster var lykilmaður í unglingastarfi Salzburg og bar fyrirliðabandið er U19 liðið komst í úrslitaleik UEFA Youth League keppninnar virtu. Þá fór hann með Salzburg á HM félagsliða í fyrra en var ónotaður varamaður í öllum leikjum riðlakeppninnar.

Brentford er talið borga um 20 milljónir evra til að festa kaup á Schuster.

   05.05.2026 07:30
Brentford að sækja varnarmann frá Salzburg




Slapp
banner