ÍA hefur fengið markvörðinn Jón Sölva Símonarson frá Breiðabliki á undanþágu vegna meiðsla Árna Marinós Einarssonar. ÍA kaupir Jón Sölva af Blikum, en félagið hafði líka reynt að gera það í vetur.
Árni meiddist á sunnudag og verður frá næstu sex til átta vikurnar vegna ristarbrots. Þar sem félagaskiptaglugginn er lokaður og varamarkvörður ÍA, Isak Theodor Eidem, er fæddur árið 2009, fékk ÍA undanþágu hjá KSÍ til að fá markvörð inn utan glugga.

Jón Sölvi er markmaður U19 landsliðsins sem fæddur er árið 2007 og var á láni hjá ÍA á liðnu tímabili.
Hann varði mark 2. flokks ÍA síðasta sumar, varð bikarmeistari þar og var varamarkmaður fyrir Árna Marinó Einarsson í meistaraflokknum.
ÍA mætir ÍBV á ELKEM-vellinum uppi á Skaga klukkan 18:00 í kvöld.