Fotbolti.net
24.05.26 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson
LiveyÍtalska deildin

Þrítugum þjálfara Parma hrósað: Lærði mikið af Arteta

Þrítugum þjálfara Parma hrósað: Lærði mikið af Arteta
Canon

Mynd: EPA

Spánverjinn Carlos Cuesta hefur fengið hrós fyrir að hafa náð flottum árangri með nokkuð dapurt Parma lið á ítalska deildartímabilinu.
Cuesta er aðeins 30 ára gamall og var þetta hans frumraun sem aðalþjálfari eftir að hafa öðlast æðstu þjálfararéttindi UEFA.

Cuesta var ráðinn inn í þjálfarateymi Mikel Arteta hjá Arsenal sumarið 2020 og stóð sig vel sem aðstoðarþjálfari næstu árin. Hann kláraði þjálfararéttindin meðan hann var samningsbundinn Arsenal en svo stal Parma honum í fyrrasumar og sjá stjórnendur ítalska félagsins ekki eftir þeirri ákvörðun.

„Það sem ég lærði af Mikel Arteta er að maður þarf alltaf að halda áfram að þroskast og þróast, alltaf. Maður má aldrei hætta því. Hann er með mjög skýrar hugmyndir og ég lærði mikið af honum. Mikel er frábær manneskja og algjör fagmaður," sagði Cuesta þegar hann var spurður út í áhrifin sem tími hans hjá Arsenal hafði.

Parma er með 42 stig fyrir lokaumferð tímabilsins, átta stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Parma stelur þjálfara frá Arsenal (Staðfest)
TENGT EFNI

Parma stelur þjálfara frá Arsenal (Staðfest)

Þrítugum þjálfara Parma hrósað: Lærði mikið af Arteta
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.