Rangers hefur gengið frá samningi við fyrirliða Hearts, Lawrence Shankland.
Shankland, sem er 30 ára, hefur samþykkt persónuleg kjör og skrifar undir tveggja ára samning til sumarsins 2028, með möguleika á eins árs framlengingu til viðbótar.
Shankland, sem er 30 ára, hefur samþykkt persónuleg kjör og skrifar undir tveggja ára samning til sumarsins 2028, með möguleika á eins árs framlengingu til viðbótar.
Hann skoraði 20 mörk fyrir Hearts á síðasta tímabili, þar af 16 í skosku úrvalsdeildinni.
Liðið missti naumlega af titlinum á lokadegi tímabilsins eftir tap gegn Celtic en Shankland skoraði í leiknum.
Rangers virkjar ákvæði í samningi hans og greiðir ótilgreinda upphæð fyrir framherjann sem er á leið á HM með Skotlandi.
Hjá Hearts spilaði hann með Tómasi Bent Magnússyni.



