Nuno Espirito Santo verður áfram stjóri West Ham á næsta tímabili. Óvissa var um hvort að hann myndi halda áfram með liðið eftir að félagið féll úr úrvalsdeildinni á dögunum.
Í tilkynningu félagsins segir að sá portúgalski muni stýra liðinu áfram á næsta tímabili eftir að hafa fundað með forráðamönnum félagsins á mánudag eftir fallið. Báðir aðilar voru með uppsagnarákvæði í samningnum.

West Ham vonast til þess að Nuno endurtaki leikinn frá árinu 2018, þegar hann kom Wolves upp úr Championship deildinni með 99 stig.
Á næstu leiktíð mun West Ham leika í Championship í fyrsta sinn síðan 2012.