Ítalski þjálfarinn Maurizio Sarri heldur ekki áfram sem stjóri Lazio á næsta tímabili. Félagið tilkynnti um tíðindin fyrr í dag með dramatísku myndbandi.
Sarri tók aftur við liðinu fyrir síðasta tímabil, en hann hafði áður látið af störfum hjá félaginu í mars 2024 eftir tæplega fjögur ár í stjórastólnum.
Liðið endaði í níunda sæti Serie A á síðasta tímabili og tapaði fyrir Inter í úrslitaleik Coppa Italia.
Ítalskir miðlar greina nú frá því að Genaro Gattuso sé líklegasti arftaki Sarri.
Hann stýrði síðast ítalska landsliðinu en hætti störfum í apríl eftir að hann náði ekki að tryggja liðinu sæti á komandi heimsmeistaramóti.
Grazie di tutto, Comandante ????#AvantiLazio pic.twitter.com/7Tc2jHQvFR
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) May 27, 2026

