Max Allegri hefur verið rekinn sem stjóri Milan eftir að liðinu mistókst að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni. íþróttastjórarnir Igli Tare og Geoffrey Moncada og framkvæmdastjórinn Giorgio Furlani voru einnig reknir.
Liðið tapaði gegn Cagliari í lokaumferðinni í gær og endaði í 5. sæti, stigi á eftir Como. Þetta er annað árið í röð sem liðinu mistekst að vinna sér sæti í Meistaradeildinni.
Liðið tapaði gegn Cagliari í lokaumferðinni í gær og endaði í 5. sæti, stigi á eftir Como. Þetta er annað árið í röð sem liðinu mistekst að vinna sér sæti í Meistaradeildinni.
Sky Sports segir að Milan hafi sett sig í samband við Andoni Iraola sem yfirgefur Bournemouth í sumar.
Iraola kom Bournemouth í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 127 ár. Liðið var taplaust í síðustu 18 leikjunum á tímabilinu. Iraola hefur einnig verið orðaður við Crystal Palace og Leverkusen.

