FRÉTTIR10.04.2024, 14:27
Víðir Freyr Ívarsson mun annað tímabilið í röð spila með Hetti/Hugin í 2. deildinni. Hann lék með liðinu í fyrra á láni frá HK en nú kemur hann til H/H frá Fram. Samningur hans við Fram gildir út árið 2025.
Víðir, sem skoraði fimm mörk fyrir H/H síðasta sumar, samdi við Fram í vetur.
FRÉTTIR10.04.2024, 13:00
Haukar halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í 2. deild. Fyrr í vetur höfðu þeir Frosti Brynjólfsson, Ernest Slupski og Finnbogi Laxdal ásamt Djordje Biberdzic.
Nú hefur Oliver James Kelaart Torres fengið leikheimild með liðinu en hann lék með Njarðvík í fyrra.

29.04.2021 15:00
Keyrði fram og til baka frá Blönduósi til Keflavíkur í nokkra daga

FRÉTTIR10.04.2024, 11:30
Varnarmaðurinn Gunnlaugur Fannar Guðmundsson er aftur kominn í Keflavík og hefur fengið leikheimild með félaginu.
Gunnlaugur yfirgaf Keflavík og samdi við Fylki í vetur þar sem hann skrifaði undir tveggja ára samning. Samningnum var hinsvegar rift í síðasta mánuði.
„Við sáum ekki fram á það að hann væri að fara að spila með okkur, og jafnvel ekki komast í hóp. Við áttum bara gott spjall þegar honum var tjáð það," sagði Olgeir Sigurgeirsson, aðstoðarþjálfari Fylkis.
FRÉTTIR09.04.2024, 21:38
Enski miðjumaðurinn Sam Hewson hefur samið um að leika með KFK í 3. deildinni í sumar en þetta kemur fram á Instagram-síðu félagsins í kvöld.
FRÉTTIR08.04.2024, 17:30
Besta deildin er farin af stað og við erum komin inn í spennandi lokakafla ensku úrvalsdeildarinnar.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðustu viku.
FRÉTTIR08.04.2024, 13:13
Tvö stig í viðbót hafa verið dregin af Everton vegna brota á fjárhagsreglum. Fyrr á tímabilinu voru tíu stig dregin af liðinu en því var breytt í sex eftir áfrýjun.
Everton færist nær sínu fyrsta fall í 73 ár en liðið er tveimur stigum fyrir ofan fallsvæðið í ensku úrvalsdeildinni þegar sjö umferðir eru eftir.
Everton hyggst áfrýja þessri seinni refsingu, eins og félagið gerði með þá fyrri.
FRÉTTIR07.04.2024, 19:10
Nadía Atladóttir hefur samið um að spila með Íslandsmeisturum Vals en þetta tilkynnti bróðir hennnar, Patrik Snær, á FanZone-inu á Hlíðarenda í kvöld.
FRÉTTIR06.04.2024, 11:55

Damian Timan hefur gengið í raðir Gróttu í Lengjudeildinni en þessi 23 ára gamli miðjumaður krotaði undir tveggja ára samning við félagið.

FRÉTTIR06.04.2024, 11:35

Hinn 22 ára gamli George Nunn er kominn með leikheimild með HK og því mun hann geta tekið þátt í leiknum gegn KA á Akureyri á morgun.

FRÉTTIR05.04.2024, 20:44
Dr. Football á X vekur athygli á því í kvöld að Nadía Atladóttir hafi rift samningi sínum við Víking en hún var samningsbundin félaginu út tímabilið 2025. Hún staðfesti svo tíðindin í kjölfarið þegar Fótbolti.net spurði út í stöðu mála.
Nadía var fyrirliði liðsins á síðasta tímabili þegar það vann Lengjudeildina og varð bikarmeistari.
FRÉTTIR05.04.2024, 20:32
Norska félagið Rosenborg og Breiðablik hafa komist að samkomulagi um það að Ísak Snær Þorvaldsson fari á láni til Breiðabliks frá norska félaginu og spilar hann því á Íslandi út komandi tímabil.
Ísak var seldur frá Breiðabliki til Rosenborg eftir tímabilið 2022 þar sem hann var besti leikmaður Íslandsmótsins og Breiðablik Íslandsmeistari.
FRÉTTIR05.04.2024, 11:50
Grindavík hefur fengið liðsstyrk fyrir tímabilið í Lengjudeildinni sem hefst eftir u.þ.b. mánuð því spænski varnarmaðurinn Dennis Nieblas er genginn í raðir félagsins og spilar með liðinu í sumar.
Dennis er 33 ára reynslumikill miðvörður sem hefur leikið víða á ferli sínum. Hann lék síðast á Kýpur en lék meðal annars með Víkingi í Götu í Færeyjum árið 2018. Hann hefur einnig leikið í Taílandi, Spáni, Austurríki og í Portúgal á ferli sínum.
FRÉTTIR05.04.2024, 10:09
Stjarnan tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Þorlák Breka Baxter. Hann mun spila með liðinu í sumar.
Hann kemur til Stjörnunnar frá Lecce á Ítalíu en þar á undan lék hann með Selfossi þar sem hann spilaði 23 leiki og skoraði fimm mörk í Lengjudeildinni síðasta sumar.
Fótbolti.net greindi frá því fyrir mánuði síðan að Breki væri líklega á leið í Stjörnuna.
FRÉTTIR04.04.2024, 17:35
Fylkir og Valur hafa komist að samkomulagi um að Orri Hrafn Kjartansson gangi til liðs við félagið á lánssamningi út tímabilið. Frá þessu greinir Fylkir á samfélagsmiðlum sínum.
Orri er 22 ára miðjumaður sem keyptur var til Vals frá Fylki eftir tímabilið 2021. Hann var ekki í leikmannahópi Vals gegn Víkingi á mánudaginn og sagði Arnar Grétarsson við Fótbolta.net að Orri væri líklegast á förum frá félaginu, sem raungerist nú þremur dögum síðar. Orri er samningsbundinn Val út tímabilið 2025.
Fylkir varð fyrir áfalli í gær þegar fyrirliði liðsins rifbeinsbrotnaði og spurning hvort að Orri taki hans stöðu á miðsvæðinu í fyrsta leik þegar Fylkir fær KR í heimsókn á sunnudag.
FRÉTTIR04.04.2024, 16:50
Kongsvinger tilkynnir á heimasíðu sinni í dag að Róbert Orri Þorkelsson sé formlega genginn í raðir félagsins á láni frá kanadíska félaginu CF Montreal sem spilar í MLS deildinni vestanhafs.
Félagsskiptaglugganum í Noregi var skellt í lás í gærkvöldi en Kongsvinger náði að landa Róberti fyrir lokun. Róbert valdi að fara til norska félagsins á afmælisdaginn sinn, 3. apríl, en hann varð 22 ára í gær.
FRÉTTIR04.04.2024, 16:21
Stjarnan hefur samið við hina bandarísku Caitlin Cosme en hún er 25 ára gömul og spilar á miðjunni.
FRÉTTIR04.04.2024, 09:59
Varnarmaðurinn Ásgeir Helgi Orrason hefur verið lánaður frá Breiðabliki í Keflavík.
FRÉTTIR03.04.2024, 16:00
Stjarnan hefur samið við bandaríska varnarmanninn Hannah Sharts og mun hún spila með liðinu í Bestu deildinni í sumar. Sharts er 24 ára gömul, hávxin og kröftug.
FRÉTTIR03.04.2024, 11:30
Ísak Óli Ólafsson hefur skrifað undir samning viðFH út 2027. Frá þessu greindi félagið á samfélagsmiðlum sínum rétt í þessu. Hann kemur frá danska liðinu Esbjerg þar sem hann hefur verið síðan 2021.
Ísak Óli er Keflvíkingur og er yngri bróðir Sindra Kristins markmanns FH. Ísak Óli, sem er 23 ára miðvörður, hefur leikið 2 A-landsliðsleiki og 36 yngri landsliðsleiki. Áður en hann fór til Esbjerg lék hann með SönderjyskE.
FRÉTTIR01.04.2024, 17:30
Enski boltinn, íslenska landsliðið og Besta deildin. Fjölbreytt fótboltafréttavika er að baki.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðustu viku.