Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fim 04. apríl 2024 16:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bandarískur miðjumaður í Stjörnuna (Staðfest)
Caitlin Cosme.
Caitlin Cosme.
Mynd: Stjarnan
Stjarnan hefur samið við hina bandarísku Caitlin Cosme en hún er 25 ára gömul og spilar á miðjunni.

Cosme er fædd og uppalin í New York í Bandaríkjunum en hún var síðast hjá Orlando Pride í bandarísku atvinnumannadeildinni.

Cosme lék U14 og U15 ára landsleiki fyrir Bandaríkin áður en hún fór í Duke-háskólann og lék með Duke Blue Devils. Þar var hún fljótt gerð að fyrirliða liðsins.

Með Cosme innanborðs vann liðið einn ACC deildar titil á námsárum hennar áður en hún gekk til liðs við Orlando Pride 2022. Samningur hennar við Orlando Pride var laus um seinustu áramót og leitaði hugur hennar til Evrópu til að spila fótbolta.

„Caitlin er mikill leiðtogi og gleðigjafi sem gott er að fá í mikið breyttan leikmannahóp Stjörnunnar og bjóðum við hana velkomna," segir í tilkynningu Stjörnunnar sem samdi þá við bandaríska varnarmanninn Hannah Sharts í gær.
Athugasemdir
banner
banner