Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR26.01.2023, 16:30

Mikael Egill til Venezia (Staðfest) - Semur til 2027

Mikael Egill Ellertsson er genginn í raðir Venezia í ítölsku B-deildinni og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027. Hann kemur til félagsins frá Spezia á sama degi og Spezia kaupir pólska varnarmanninn Przemyslaw Wisniewski frá Venezia.

FRÉTTIR26.01.2023, 16:12

Orri Sigurjónsson í Fram (Staðfest)

Orri Sigurjónsson er genginn í raðir Fram, frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið og kemur frá Þór þar sem hann hafði leikið allan sinn feril til þessa.

FRÉTTIR26.01.2023, 15:00

Árni Snær í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan hefur fengið markvörðinn Árna Snæ Ólafsson í sínar raðir. Frá þessu greinir Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum. Árni hefur allan sinn feril leikið með ÍA en söðlar nú um og verður með Stjörnunni í sumar. Alls á hann að baki 255 leiki fyrir ÍA. Hann fer væntanlega í samkeppni við Harald Björnsson sem hefur verið aðalmarkvörður Stjörnunnar undanfarin ár.

FRÉTTIR26.01.2023, 13:55

Stóri Dunc tekinn við Forest Green (Staðfest) - „Beðið eftir þessu lengi"

Duncan Ferguson, fyrrum framherji Everton, var í dag ráðinn stjóri Forest Green sem er í ensku C-deildinni, League One. <i>&bdquo;Ég hef beðið eftir þessu lengi. Ég er mjög þakklátur að fá þetta tækifæri. Þetta gerðist mjög hratt. Ég tók símtal í fyrrakvöld og var beðinn um að koma til að ræða málin. Við ræddum málin, ég fór aftur til Liverpool, tók ákvörðun og kom aftur hingað," sagði Ferguson í dag.

FRÉTTIR26.01.2023, 06:00

Grindavík fær bandarískan miðjumann (Staðfest)

Knattspyrnudeild Grindavíkur tilkynnti nýjan leikmann á samfélagsmiðlum í gær en bandaríska fótboltakonan Arianna Veland er komin til félagsins og mun spila með liðinu á komandi tímabili.

FRÉTTIR25.01.2023, 19:56

Dan Bentley til Wolves (Staðfest)

Enski markvörðurinn Dan Bentley er genginn til liðs við Wolves frá Bristol City en hann skrifaði í kvöld undir tveggja og hálfs árs samning við úrvalsdeildarfélagið.

FRÉTTIR25.01.2023, 17:45

Gunnhildur Yrsa heim í Stjörnuna (Staðfest) - „Algjör draumur"

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin í raðir Stjörnunnar, frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum í dag. Þar segir að hún sé að snúa aftur heim eftir ellefu ára dvöl erlendis. <i>„Gunnhildi þarf ekki að kynna fyrir Stjörnufjölskyldunni en hún var síðast hjá okkur árið 2012 áður en hún hélt út í atvinnumennsku,"</I> segir í tilkynningunni.

FRÉTTIR25.01.2023, 14:39

Danjuma kominn til Tottenham (Staðfest) - Harður skellur fyrir Everton

Tottenham hefur fengið Arnaut Danjuma á láni frá Villarreal út tímabilið. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir Spurs í janúarglugganum. Danjuma var á leiðinni til Everton og var búinn að gangast undir læknisskoðun og samþykkja kaup og kjör. Hann átti bara eftir að skrifa undir þegar Tottenham skarst í leikinn.

FRÉTTIR25.01.2023, 10:33

Kolbeinn Finns til Lyngby (Staðfest)

Kolbeinn Birgir Finnsson er genginn í raðir danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby. Freyr Alexandersson er þjálfari Lyngby og með liðinu spila Sævar Atli Magnússon og Alfreð Finnbogason. Kolbeinn er 23 ára, fyrrum leikmaður Fylkis, og kemur frá Borussia Dortmund þar sem hann spilaði með varaliðinu í þýsku C-deildinni. Lyngby er í neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar og ekkert annað en fall beint aftur niður í B-deildina virðist blasa við liðinu. Hjá Lyngby er hann væntanlega hugsaður sem vinstri bakvörður en hjá varaliði Dortmund spilaði hann einnig á vinstri kanti og sem miðvörður vinstra megin í þriggja miðvarða kerfi.

FRÉTTIR25.01.2023, 10:30

Fabio Silva færir sig yfir til Hollands (Staðfest)

Fabio Silva, framherji Wolves, er á leið til PSV Eindhoven í Hollandi á lánssamningi. Þessi tvítugi Portúgali var hjá Anderlecht í Belgíu á láni fyrri hluta tímabilsins en færir sig nú yfir til Hollands. PSV er með í Evrópudeildinni.

FRÉTTIR25.01.2023, 10:00

Oh Hyeon-gyu til Celtic (Staðfest)

Sóknarmaðurinn Oh Hyeon-Gyu lék sinn fyrsta landsleik fyrir Suður-Kóreu þegar hann kom af bekknum í vináttulandsleik gegn Íslandi í nóvember. Suður-Kórea <a href="https://fotbolti.net/game.php?action=view_game&id=5680&completed=1" target="_blank">vann leikinn</a> 1-0.

FRÉTTIR24.01.2023, 17:30

Inga Laufey heim í Aftureldingu (Staðfest)

Afturelding heldur áfram að þétta raðirnar fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Um helgina var tilkynnt um komu Magðalenu Ólafsdóttur til félagsins og í gær var koma Hlínar Heiðarsdóttur tilkynnt. Í færslu á samfélagsmiðlum í dag er sagt frá komu Ingu Laufeyjar Ágústsdóttur til félagsins. Hún snýr aftur heim í uppeldisfélagið eftir þriggja ára dvöl hjá KR.

FRÉTTIR24.01.2023, 17:00

Santos kynntur sem nýr þjálfari Póllands (Staðfest)

Portúgalinn Fernando Santos var í dag kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Póllands. Santos hætti sem landsliðsþjálfari Portúgals eftir HM í Katar en hann stýrði portúgalska liðinu til Evrópumeistaratitilsins 2016. Árið 2019 vann liðið svo Þjóðadeildina. Santos, sem er 68 ára, mun flytjast til Varsjá og er ætlað að stýra pólska liðinu á EM sem fram fer í Þýskalandi á næsta ári.

FRÉTTIR24.01.2023, 16:53

Tahnai Annis mætt aftur í Þór/KA (Staðfest) - Verður fyrirliði á HM í sumar

Þór/KA hefur samið við fyrrum leikmann félagsins, Tahnai Annis, út komandi tímabil. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Hún er 33 ára sóknarsinnaður miðjumaður og var hjá Þór/KA á árunum 2012-14. Hún var hluti af Íslandsmeistaraliðinu árið 2012 og á samtals að baki 72 leiki í öllum keppnum með liðinu. Hún skoraði 21 mark í þessum 72 leikjum, var í lykilhlutverki síðast þún spilaði með Þór/KA og valin besti leikmaður liðsins eftir tímabilið 2013.

FRÉTTIR24.01.2023, 15:30

Man Utd lánar Savage til Forest Green (Staðfest)

Hinn 19 ára gamli miðjumaður Charlie Savage, leikmaður Manchester United, hefur samþykkt lánssamning við Forest Green Rovers sem er í fallbaráttu ensku C-deildarinnar. Savage er lánaður út tímabilið en hann lék sinn fyrsta aðalliðsleik fyrir United í Meistaradeildinni á síðasta tímabili. Þá fór hann með liðinu í æfingaferð til Tælands og Ástralíu.

FRÉTTIR24.01.2023, 15:27

Jökull enn og aftur til Exeter (Staðfest) - Fer á neyðarláni

Markvörðurinn Jökull Andrésson hefur gengið í raðir enska C-deildarliðsins Exeter á neyðarláni frá Reading vegna meiðsla markvarðarins Jamal Blackman. Lánssamningurinn gildir í sjö daga en þetta er í þriðja sinn á þremur árum sem Jökull er lánaður til Exeter. Liðið er um miðja deild í League One. Jökull er 21 árs og hefur leikið einn A-landsleik fyrir Ísland. Hann er samningsbundinn Reading til sumarsins 2024 en hann hefur enn ekki spilað opinberan leik fyrir aðallið félagsins. Fyrri hluta tímabilsins var Jökull frá vegna nárameiðsla en hann hefur einnig spilað á lánssamningi hjá Morecambe.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.