Emil Skorri í Þrótt Vogum (Staðfest)

Emil Skorri Þ. Brynjólfsson, fyrrum leikmaður HK og ÍR sem skoraði 24 mörk í 22 leikjum með Ými í 4. deildinni, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Þrótt Vogum.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25217 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Emil Skorri Þ. Brynjólfsson, fyrrum leikmaður HK og ÍR sem skoraði 24 mörk í 22 leikjum með Ými í 4. deildinni, er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Þrótt Vogum.

Elís Rafn Björnsson hefur gengið til liðs við Fylki en hann kemur frá Stjörnunni og skrifar undir tveggja ára samning í Árbænum.

Elvar Baldvinsson er genginn í raðir Vestra en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kom fram á heimasíðu Vestra fyrir stuttu.

Jón Kristinn Ingason, leikmaður hjá Þrótti Vogum, hefur framlengt samning sinn við félagið en Jón er efnilegur leikmaður sem spilaði sextán leiki fyrir félagið síðasta sumar.

Orri Sigurjónsson verður ekki áfram í herbúðum Þórs á næsta tímabili en þetta tilkynnti hann á Instagram-síðu sinni í kvöld.
Knattspyrnudeild KA tilkynnti í kvöld ráðningu á Hólmari Erni Rúnarssyni en hann kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla og mun einnig þjálfa 2. flokk félagsins.
Miðjumaðurinn Einar Karl Ingvarsson hefur fengið félagaskipti yfir til Grindavíkur í Lengjudeildinni. Það var greint frá því hér á síðunni fyrr í dag að Einar Karl væri að nálgast Grindavík. Nú hefur það verið staðfest að hann sé kominn yfir til Grindavíkur.
Varnarmaðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson er búinn að skrifa undir samning við Breiðablik. Kópavogsfélagið hefur staðfest þessi tíðindi, en það var greint frá því að Arnór væri að fara í Breiðablik hér á síðunni fyrr í dag.
Dirk Kuyt, fyrrum leikmaður Liverpool, var í dag rekinn frá Ado Den Haag í Hollandi þar sem hann hefur verið aðalþjálfari. Kuyt var ráðinn fyrir tæpu hálfu ári, fyrir 176 dögum síðan. Gengi Den Haag hefur ekki verið gott í hollensku B-deildinni, liðið hefur aldrei byrjað verr.
Andrea Rut Bjarnadóttir skrifaði í kvöld undir þriggja ára samning við Breiðablik en hún kemur til félagsins frá Þrótti R. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Blikum.
Heimsmeistaramótið í Katar hófst á sunnudaginn. Við höldum áfram að hita upp fyrir riðlakeppnina - sem er komin á fleygiferð - með því að birta fréttir um hvern riðil. Það er aðeins einn riðill eftir og líklega er hægt að tala um þann riðil sem mesta dauðariðilinn. það er H-riðillinn. Í þeim riðli eru: Portúgal 🇵🇹 Gana 🇬🇭 Úrúgvæ 🇺🇾 Suður-Kórea 🇰🇷
Kjartan Kári Halldórsson er orðinn leikmaður Haugesund í Noregi. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið.
Pep Guardiola hefur framlengt samning sinn við Manchester City og er nú bundinn félaginu til 2025. Guardiola hefur unnið ellefu titla, þar á meðal fóra Englandsmeistaratitla á sex árum ár Etihad. Þessi 51 árs Spánverji hefur stýrt 374 leikjum og er sá einstaklingur sem hefur verið næstlengst við stjórnvölinn hjá City.
Færeyski landsliðsmaðurinn Patrik Johannesen er genginn í raðir Breiðabliks frá Keflavík. Þessi 27 ára sóknarleikmaður skoraði 12 mörk fyrir Keflvíkinga í Bestu deildinni í sumar. Dr. Football greindi frá því að Breiðabliki væri að borga um 11 milljónir króna fyrir Patrik. Patrik lýsti því yfir í viðtali við Fótbolta.net í október að sinn vilji væri að ganga í raðir Blika og nú hefur hann fengið þá ósk sína uppfyllta.

Afturelding er búið að krækja í kant- og miðjumanninn öfluga Ásgeir Marteinsson sem hefur leikið með HK undanfarin ár. Hann skrifar undir tveggja ára samning við Mosfellinga, sem gildir út keppnistímabilið 2024.

Manchester United er búið að staðfesta að Cristiano Ronaldo hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.

Landsliðskonan Hlín Eiríksdóttir er komin með nýtt félag. Hún er gengin til liðs við Íslendingafélagið Kristianstad. Hún skrifar undir tveggja ára samning við félagið.
FH er að styrkja sig fyrir átökin í Bestu deildinni næsta sumar. Þær Sara Montoro og Berglind Þrastardóttir hafa báða skrifað undir þriggja ára samning við liðið. Sara er 19 ára framherji sem kemur til FH frá Fjölni. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sara spilað 91 KSÍ leik og skorað 51 mark. Sara hefur svo einnig spilað þrjá unglingalandsleiki og skorað í þeim eitt mark.
Bjarni Gunnarsson hefur kvatt HK, honum var þakkað fyrir sitt framlag til félagsins og óskað velfarnaðar í framtíðinni í færslu á samfélagsmiðlum í gær. Bjarni spilaði 110 leiki fyrir HK og skoraði í þeim 35 mörk. Undanfarin þrjú tímabil hefur Bjarni lítið getað spilað, einungis komið við sögu í átján deildarleikjum.
ÍBV hefur tilkynnt að miðjumaðurinn Telmo Castanheira hafi ákveðið að hafna samningstilboði félagsins og ætli að reyna fyrir sér á öðrum vettvangi. Fyrir viku síðan var staðfest að Sito myndi yfirgefa Vestmannaeyjar og nú fylgir Telmo í hans spor.