FRÉTTIR30.01.2026, 16:29
Sóknarleikmaðurinn Bragi Karl Bjarkason hefur verið keyptur frá FH til Njarðvíkur. Talað hefur verið um að kaupverðið sé um fjórar milljónir króna.
Bragi er 23 ára og var eitt ár hjá FH, eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu, ÍR.
<i>Bragi gerir samning við Njarðvík út keppnistímabilið 2029, og hefur æfingar með nýju liðsfélögum sínum í dag. Knattspyrnudeild Njarðvíkur býður Braga Karl hjartanlega velkominn til Njarðvíkur og hlakkar mikið til að sjá hann í grænu treyjunni næstu árin!"</i> segir í tilkynningu Njarðvíkinga.
FRÉTTIR30.01.2026, 13:09
Jón Vignir Pétursson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Aftureldingu en hann kemur á frjálsri sölu frá Selfossi þar sem samningur hans við uppeldisfélagið rann út eftir síðasta tímabilið. Fótbolti.net sagði frá því í gær að Jón Vignir væri á leið til Aftureldingar.
Jón er 22 ára gamall en hann hefur á ferli sínum spilað á miðjunni og sem miðvörður. Hann hefur verið lykilmaður hjá Selfossi síðustu tímabil og verið fyrirliði liðsins frá árinu 2023. Hann er fæddur árið 2003, á að baki sex tímabil í meistaraflokki og hefur alls spilað ríflega 150 leiki fyrir félagið. Hann meiddist illa í júlí í fyrra og er að komast af stað aftur.
FRÉTTIR30.01.2026, 12:58
Fulham hefur gengið frá kaupum á norska leikmanninum Oscar Bobb frá Manchester City. Fulham greiðir 27 milljónir punda fyrir Bobb sem gerir fimm og hálfs árs samning.
Hluti af samkomulaginu milli félaganna er að Cityfái 20% af næstu sölu á Bobb og þegar Fulham samþykkir tilboð frá öðru félagi þá geti City jafnað það tilboð.
Bobb, sem er 22 ára, getur bæði spilað miðsvæðis og á kantinum. Hann var mjög heitur komandi inn í tímabilið 2024/25 en meiddist illa og hefur ekki náð að tengja saman marga leiki með City frá þeim meiðslum.
FRÉTTIR30.01.2026, 09:00
Diego Coppola er genginn til liðs við Paris FC á láni frá Brighton út tímabilið. Coppola er 22 ára gamall ítalskur miðvörður en hann gekk til liðs við Brighton frá Hellas Verona síðasta sumar.
FRÉTTIR30.01.2026, 07:30
Úkraínumaðurinn Oleksandr Zinchenko er á leið til Ajax frá Arsenal en Fabrizio Romano greinir frá því að hann muni skrifa undir samning við hollenska félagið í dag.
FRÉTTIR30.01.2026, 07:00
Vestri tilkynnti um komu Konstantin Cheshmedjiev til félagsins í gær.
Cheshmedjiev er þrítugur miðvörður en hann fagnaði þrítugs afmælinu sínu í gær. Hann kemur til landsins í dag.
FRÉTTIR30.01.2026, 06:00
Tindastóll tilkynnti um komu Rita Lang til félagsins en hún skrifar undir samning við félagið fyrir baráttuna í Lengjudeildinni næsta sumar.
Lang er 27 ára gömul og er portúgalskur miðjumaður. Hún hefur spilað í Bandaríkjunum, Portúgal og á Írlandi.
FRÉTTIR29.01.2026, 16:00
Alex Freyr Elísson var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður NSÍ Runavíkur. Hann kemur til félagsins eftir að hafa verið í um tvo mánuði hjá Njarðvík.
Alex kom til Njarðvíkur frá Fram í vetur og hefur leikið með liðinu í æfingaleikjum. Hann var hins vegar með ákvæði í samningi sínum að hann gæti farið erlendis ef áhugi kæmi þaðan.
Alex er 28 ára hægri bakvörður sem skrifar undir samning við NSÍ sem gildir út tímabilið 2026. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ.
FRÉTTIR29.01.2026, 14:39
Milan Jezdimirovic hefur skrifað undir samning við ÍBV. Hann er fyrsti serbneski leikmaðurinn sem Serbinn Aleksandar Linta fær til Eyja eftir að hann tók við sem þjálfari liðsins fyrr í þessum mánuði.
Fyrir í hópnum hjá ÍBV var Serbinn Milan Tomic sem kom fyrir síðasta tímabil.
FRÉTTIR29.01.2026, 06:00
Spánverjinn Abdelhadi Khalok hefur samið við Víking Ólafsvík en hann kemur til félagsins frá Kormáki/Hvöt.
FRÉTTIR28.01.2026, 20:12
Sveinn Aron Guðjohnsen er genginn til liðs við Cavese í C-deildinni á Ítalíu en hann gerir samning út leiktíðina með möguleika á að framlengja um ár til viðbótar ef ákveðnum skilyrðum er mætt.
FRÉTTIR28.01.2026, 19:55
Enski miðjumaðurinn James Ward-Prowse er kominn til Burnley á láni frá West Ham út leiktíðina.
FRÉTTIR28.01.2026, 17:58
Aston Villa hefur tilkynnt um endurkomu Douglas Luiz til félagsins en hann kemur á láni frá Juventus.
FRÉTTIR28.01.2026, 16:44
Raheem Sterling hefur yfirgefið Chelsea eftir að hafa gert samkomulag við félagið um riftun á samningi.
Átján mánuðir voru eftir af samningi hans við Chelsea en hann kom til félagsins fyrir 47,5 milljónir punda frá Manchester City 2022.
FRÉTTIR28.01.2026, 13:30
ÍBV hefur fengið Róbert Elís Hlynsson á láni frá KR út komandi tímabil. Róbert Elis skrifaði undir hjá KR eftir tímabilið 2024, kom frá ÍR og hefur skorað níu mörk í 20 leikjum síðan. Fimm af þeim skoraði hann í þessum mánuði í Reykjavíkrumótinu þar sem hann er markahæsti leikmaður mótsins.
Róbert Elís er fæddur árið 2007 og er fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað sem fremsti maður hjá KR í síðustu leikjum.
Hann er nú á förum til Eyja og er fyrsti leikmaðurinn sem félagið fær eftir að Aleksandar Linta tók við sem þjálfari.
FRÉTTIR28.01.2026, 11:30
Neal Maupay hefur verið lánaður til Sevilla frá franska félaginu Marseille. Margir mun eftir Maupay hjá Brighton og Everton í ensku úrvalsdeildinni.
Maupay er 29 ára Frakki sem samdi við Marseille síðasta sumar og hefur einungis komið einu sinni við sögu í deildinni í vetur.
FRÉTTIR28.01.2026, 11:07
West Ham hefur gengið frá kaupum á Adama Traore frá Fulham. Traore er þrítugur vængmaður sem vakti mikla athygli hjá Wolves á sínum tíma og spilaði með Barcelona.
Hjá West Ham hittir hann fyrir stjórann Nuno Espirito Santo en þeir unnu saman hjá Wolves á árunum 2018-21.
<i>„Ég er svo glaður að vera kominn hinggað, glaður að geta hjálpað liðinu eins mikið og hægt er og að geta sýnt mín gæði. Þetta er stórt félag með gríðarlega marga aðdáendur. Ég hef fylgst með West Ham frá því að ég horfði ungur á kvikmyndir þar sem West Ham kom fyrir. Ég veit hversu ástríðufullir stuðningsmennirnir eru. Ég elska þessa áskorun. Ég held að allir hafi trú og ég trúi að við munum ná markmiðinu okkar,"</I> segir Traore.
FRÉTTIR28.01.2026, 06:00
Fram er búið að krækja sér í nýjan kantmann sem kemur til liðsins úr röðum Aftureldingar.
FRÉTTIR28.01.2026, 06:00
Sandra Dís Hlynsdóttir er búin að skipta um félag og mun leika fyrir Hauka á komandi leiktíð.
FRÉTTIR27.01.2026, 23:42
Portúgalska stjarnan Nani hefur ákveðið að taka takkaskóna af hillunni rúmu ári eftir að hafa hætt í fótbolta.