Fotbolti.net
01.01.10 - 09:48
Hafliði Breiðfjörð

LuaLua til Olympiakos (Staðfest)

Lomano Tresor LuaLua.

Lomano Tresor LuaLua.

Canon

Mynd: Getty Images

Grísku meistararnir í Olympiako s Piraeus tilkynntu í gær að félagið hafi gengið frá samningi við framherjann Lomano Tresor LuaLua út tímabilið.
LuaLua sem er framherji frá Kongo snýr því aftur til gríska félagsins þar sem hannn var áður tímabilið 2007-2008.

Gríska félagið gaf ekki neinar upplýsingar um kaupverð á honum en sagði að möguleiki væri á að semja við hann til tveggja ára til viðbótar.

LuaLua sem er 29 ára gamall þekkja flestir síðan hann var hjá Newcastle United frá árinu 2000-2004. Hann fór þaðan til Portsmouth frá 2004-2007. Svo fór hann til Olympiakos í eitt tímabil en var nú síðast hjá Al-Arabi.

Hann á að baki 31 landsleik fyrir Kongó og hefur skorað í þeim 18 mörk.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.