Fotbolti.net
15.11.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Inzaghi ekki búinn að taka ákvörðun

Inzaghi ekki búinn að taka ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Ítalski þjálfarinn Simone Inzaghi, sem gerði magnaða hluti við stjórnvölinn hjá Inter og kom liðinu tvisvar sinnum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á þremur árum, rennur út á samningi hjá Al-Hilal næsta sumar.
Segja Inzaghi vera á förum í sumar
TENGT EFNI

Segja Inzaghi vera á förum í sumar

Inzaghi fékk risastóran tveggja ára samning hjá Al-Hilal í fyrrasumar og mistókst að vinna deildina á sínu fyrsta tímabili eftir harða titilbaráttu við Cristiano Ronaldo og félaga í Al-Nassr.

Al-Hilal gekk vel á löngum köflum en tókst þó einungis að vinna einn titil, sádi-arabíska konungsbikarinn.

Talið er að Inzaghi hafi ekki lengur þörf á ofurlaununum sem bjóðast í Sádi-Arabíu og segja fjölmiðlar á Ítalíu að hann vilji snúa aftur í ítalska boltann á næstu leiktíð.

Federico Pastorello, umboðsmaður Inzaghi, hefur tjáð sig um orðrómana. Hann segir það ekki vera rétt að Inzaghi sé búinn að ákveða að yfirgefa Sádi-Arabíu eftir tímabilið.

„Fréttirnar um að Inzaghi sé búinn að taka ákvörðun um að yfirgefa Al-Hilal eru rangar. Engin ákvörðun hefur verið tekin varðandi framtíð Inzaghi," segir Pastorello.
Inzaghi ekki búinn að taka ákvörðun
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.