15.11.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þjóðadeildin í dag - Úrslitaleikir í Belgíu og á Spáni

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Það eru gríðarlega spennandi leikir á dagskrá í lokaumferð riðlakeppni Þjóðadeildarinnar í kvöld.
Í A-deild eru tveir úrslitaleikir sem verða spilaðir. Belgía tekur á móti Ítalíu í æsispennandi viðureign á meðan heims- og Evrópumeistararnir frá Spáni spila við ógnarsterkt lið Englands.
Belgía og Spánn unnu fyrri viðureignir þessara þjóða á útivelli, en staðan er enn galopin fyrir lokaumferðina.
Frakkland getur tryggt sér sæti í úrslitakeppninni með sigri eða jafntefli á heimavelli gegn Tyrklandi á meðan Króatía og Tékkland eigast við í fallbaráttuslag.
Þá eru einnig leikir á dagskrá í C-deildinni. Þar spila Albanía og Belarús úrslitaleik um toppsæti síns riðils á meðan Finnar taka á móti San Marínó. Finnar þurfa sigur og á sama tíma að treysta á að Belarús tapi heimaleiknum gegn Albönum.
Frændur okkar frá Finnlandi eru að standa sig mjög illa í Þjóðadeildinni. Þeir eru aðeins komnir með 7 stig eftir 5 umferðir.
Þjóðadeildin A
19:45 Belgía - Ítalía
19:45 Króatía - Tékkland
19:45 Frakkland - Tyrkland
19:45 Spánn - England
Þjóðadeildin C
14:00 Kýpur - Svartfjallaland
14:00 Lettland - Armenia
17:00 Belarús - Albanía
17:00 Finnland - San Marínó