15.11.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Vildum vinna þennan leik fyrir Ronaldo"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgal tók á móti Danmörku í Þjóðadeildinni í gærkvöldi og tapaði afar óvænt með stórum mun.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Danir léku sér að Portúgölum
Þetta var fyrsti leikur Portúgal eftir að Cristiano Ronaldo lagði landsliðsskóna á hilluna og urðu lokatölur 1-4 fyrir Dani.
Portúgalir heiðruðu Ronaldo með ýmsum hætti fyrir leik. Þeir breyttu útliti á treyju númer 7 í landsliðinu, svo enginn leikmaður muni klæðast treyjunni hans Ronaldo.
Allir leikmenn í byrjunarliði Portúgal gengu þá inn á völlinn, ásamt lukkubörnum, í Ronaldo treyju númer 7 til að heiðra goðsögnina. Á sjöundu mínútu leiksins brutust svo út mikil fagnaðarlæti þegar stuðningsmenn klöppuðu fyrir Ronaldo í heila mínútu.
„Við vildum vinna þennan leik og tileinka Cristiano Ronaldo sigurinn. Það gerir þetta tap ennþá sárara. Þetta kvöld var til heiðurs Cris," sagði miðvörðurinn Rúben Dias eftir tapið.
Á fréttamannafundi eftir tapið var Jorge Jesus landsliðsþjálfari spurður hvort það hafi vantað Ronaldo á völlinn.
„Hann gefur ekki lengur kost á sér í landsliðið svo hvað ætti að vanta? Það eina sem vantar er nærvera hans hérna til að halda mér félagsskap," svaraði Jesus.

Heiðra Ronaldo þótt hann verði líklega ekki viðstaddur

TENGT EFNI
Gera breytingu til heiðurs Ronaldo
7?????????? Portugal fans celebrate Cristiano Ronaldo on minute 7. ????????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) November 14, 2026
@DiogoEsteves91 ???? https://t.co/o4yQxSWwi0

Mynd: EPA

Mynd: EPA