Fotbolti.net
14.11.26 - 23:10
Ívan Guðjón Baldursson

„Það eru engir fordómar á Spáni"

„Það eru engir fordómar á Spáni"
Canon

Mynd: EPA

Luis de la Fuente landsliðsþjálfari Spánverja svaraði spurningum á fréttamannafundi fyrir stórleikinn gegn Englandi í Þjóðadeildinni.
Englendingar tilbúnir ef þeir verða varir við fordóma
TENGT EFNI

Englendingar tilbúnir ef þeir verða varir við fordóma

Spánverjar eru ríkjandi heims- og Evrópumeistarar á meðan England endaði í öðru sæti á síðasta EM og þriðja sæti á HM.

Thomas Tuchel svaraði spurningum fréttamanna fyrr í dag og sagðist ætla að taka sér fimm mínútur með leikmönnum til að rifja upp verkferla UEFA varðandi kynþáttafordóma í ljósi sögunnar. England spilaði síðast í Madríd 2004 og urðu leikmenn fyrir miklum fordómum. Vandamálið er ekki bara bundið við fortíðina út af því að spænska fótboltasambandið var fyrr á þessu ári sektað fyrir kynþáttafordóma áhorfenda sinna í vináttulandsleik gegn Egyptalandi.

„Það sem ég myndi segja við ykkur, og þið megið segja við Thomas, er að það eru engir kynþáttafordómar á Spáni," svaraði De la Fuente þegar hann var spurður út í ummæli Tuchel.

„Alveg eins og á Englandi, þá eru engir fordómar á Spáni. Enginn hérna er rasisti."

Ummæli De la Fuente vekja athygli sérstaklega í ljósi síðustu ára í spænska boltanum, þar sem Vinícius Júnior hefur orðið sérstaklega mikið fyrir barðinu á kynþáttaníði. Þrír stuðningsmenn Valencia fengu til að mynda átta mánaða fangelsisdóma fyrir fordóma sína í garð Vinícius frá áhorfendapöllunum.

Þjálfarinn mikilsvirti segist vera mjög spenntur fyrir risaslagnum og býst við skemmtilegum leik.

„Við erum með svo mismunandi leikstíla en ég er persónulega hrifnari af spænska stílnum. Enski stíllinn er líka mjög góður en til þess að spila hann þá þarftu að vera með ákveðna tegund af leikmönnum. Við getum ekki spilað enska leikstílinn vel, ekki frekar en þeir geta spilað okkar leikstíl vel. Það er mikill munur á áherslunum."

Spánn er á rosalega góðu skriði. Landsliðið er ósigrað í síðustu 43 leikjum og er löngu búið að bæta metið sem ítalska landsliðið setti fyrir nokkrum árum. De la Fuente segist taka eftir því að mótherjarnir séu sífellt grimmari og staðráðnari í því að sigrast á Spánverjum. Þá segir hann þann mikla verðmun sem er í mörgum tilfellum á enskum og spænskum fótboltamönnum ekki tengjast gæðum leikmanna, heldur öðrum þáttum.

„Ég er hissa að spænskir fótboltamenn séu ódýrari heldur en þeir ensku út af því að mér finnast þeir spænsku vera betri."

De la Fuente var að lokum spurður út í Lamine Yamal sem missti af síðasta leik Spánverja gegn Tékklandi vegna meiðsla.

„Við erum ekki vissir hvort hann byrji leikinn. Ef hann kemur við sögu þá er það út af því að hann er klár í slaginn."
„Það eru engir fordómar á Spáni"
Canon

Mynd: EPA

„Það eru engir fordómar á Spáni"
Canon

Mynd: EPA

„Það eru engir fordómar á Spáni"
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.