15.11.26 - 09:55
Brynjar Ingi Erluson
Skotmark Arsenal kostar 66 milljónir punda - Framtíð Fernandes ræðst af gengi Pochettino

Antonio Nusa kostar 66 milljónir punda

Mynd: EPA

Bruno Fernandes ætlar að bíða með að skrifa undir nýjan samning við Man Utd

Mynd: EPA

Antonio Nusa kostar 66 milljónir punda

Mynd: EPA

Powerade-slúðurpakkinn er lentur og þar koma meðal annars við sögu þeir Antonio Nusa, Bruno Fernandes og Fabian Ruiz.
Þýska félagið RB Leipzig er sagt vilja fá um 66 milljónir punda fyrir norska landsliðsmanninn Antonio Nusa (21), en Englandsmeistarar Arsenal hyggjast leggja fram tilboð í hann í janúarglugganum. (Teamtalk)
Bruno Fernandes (32), fyrirliði Manchester United, vill sjá hvernig liðinu gengur undir stjórn Mauricio Pochettino, nýs stjóra félagsins, áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann skrifi undir nýjan samning. Samningur Portúgalans rennur út eftir tímabilið. (Sun)
Chelsea hefur hafnað tilboði Real Betis í spænska framherjann Jose Antonio Morante (19). (ABC Sevilla)
Fabian Ruiz (30), miðjumaður Paris Saint-Germain og spænska landsliðsins, vill ljúka ferlinum hjá Real Betis, uppeldisfélagi sínu á Spáni. (Diario Sport)
Brasilíski framherjinn Rayan (20) hefur greint frá því að hann hafi alla tíð haldið með Manchester United. Félagið hafði áhuga á honum áður en hann gekk til liðs við Bournemouth frá Vasco da Gama í janúar. (ESPN)
Nýliðar Coventry City óttast að brottför Jack Rudoni (25) í janúarglugganum gæti haft slæm áhrif á liðið, en Leeds og Newcastle hafa bæði áhuga á enska miðjumanninum. (Football Insider)
Belgíski miðjumaðurinn Kevin de Bruyne (35) vill yfirgefa Napoli og snúa aftur til heimalandsins, en eiginkona hans, Michelle, greindi frá þessu á dögunum. (Mirror)
Everton og Nottingham Forest berjast um brasilíska miðvörðinn Gustavo Martins (24), sem leikur með Gremio í heimalandinu. Hann er metinn á 10 til 12,5 milljónir punda. (Fussball Europa)