14.11.26 - 23:33
Ívan Guðjón Baldursson
Dowman tók met af Jude Bellingham

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kantmaðurinn efnilegi Max Dowman bætti aldursmet Jude Bellingham með enska U21 landsliðinu í gær.
Dowman er orðinn yngsti leikmaður í sögu U21 landsliðsins en honum tókst ekki að koma í veg fyrir naumt tap á heimavelli gegn Portúgal.
Dowman fagnar 17 ára afmæli á gamlársdag og er nokkrum mánuðum yngri heldur en Bellingham var þegar hann bætti metið á sínum tíma. Bellingham var búinn að eiga 17 ára afmæli þegar hann kom fyrst við sögu með U21 liðinu.
Þetta er annar tapleikurinn í röð hjá lærlingum Lee Carsley, en þetta er í fyrsta sinn síðan 2021 sem ógnarsterkt lið Englands tapar tveimur keppnisleikjum í röð.