14.11.26 - 23:59
Ívan Guðjón Baldursson
Trafford í markinu: Býst við að Yamal byrji

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Thomas Tuchel landsliðsþjálfari Englendinga hefur staðfest að varnarmennirnir Djed Spence og Ezri Konsa eru búnir að ná sér eftir að hafa verið fjarri góðu gamni í sigrinum gegn Króatíu fyrir helgi. Þá verður James Trafford á milli stanganna í stað Jordan Pickford sem sest á bekkinn.

TENGT EFNI
Englendingar tilbúnir ef þeir verða varir við fordóma
Spence og Konsa voru ekki með í hópnum vegna smávægilegra meiðsla en þeir geta báðir komið sögu í risaslagnum gegn heims- og Evrópumeisturum Spánar í kvöld.
„Góðu fréttirnar eru að allir leikmenn hópsins eru klárir í slaginn og ég get staðfest að James Trafford verður í markinu, við viljum sjá hvernig hann fótar sig með liðinu," sagði Tuchel, sem fór víðan völl á fréttamannafundinum.
Lamine Yamal var ekki með Spánverjum gegn Tékklandi fyrir helgi en verður líklega í byrjunarliðinu í kvöld.
„Lamine Yamal er einn af allra bestu fótboltamönnum heims og ég geri ráð fyrir því að hann verði í byrjunarliðinu. Við erum allavega að undirbúa okkur fyrir leik gegn Spánverjum með Yamal í liðinu."
Tuchel talaði þá um að hann búist við að Jude Bellingham verði upp á sitt besta og að hann ætli ekki að gera neinar djarfar tilraunir með byrjunarliðið í þessum leik. Þetta sé alltof mikilvægur leikur til þess.