Fotbolti.net
15.11.26 - 10:40
Brynjar Ingi Erluson

Barcelona hefur fengið tilboð frá fjórum úrvalsdeildarfélögum

Fermín Lopez vill ekki fara frá Barcelona

Fermín Lopez vill ekki fara frá Barcelona

Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið tilboð í spænska landsliðsmanninn Fermín Lopez frá fjórum félögum í ensku úrvalsdeildinni en það er Sport sem greinir frá.
Fermín, sem er 23 ára, hefur verið í frábæru formi með Börsungum á þessari leiktíð og skorað átta mörk og lagt upp önnur sjö í aðeins fimmtán leikjum.

Samkvæmt Sport er mikill áhugi á miðjumanninum og hafa Barcelona borist tilboð frá fjórum félögum í ensku úrvalsdeildinni, þar sem hæsta upphæðin er sögð vera um 90 milljónir punda.

Chelsea og Manchester United eru sögð hvað áhugasömust um Fermín, en Barcelona hafnaði 60 milljóna punda tilboði frá Chelsea fyrir ekki svo löngu síðan. Tvö önnur ensk félög hafa einnig lagt fram tilboð í leikmanninn.

Fermín sjálfur hefur þó engan áhuga á að yfirgefa Barcelona og virðist ekkert ætla að láta tilboðin freista sín.

Hann skrifaði undir nýjan samning við Börsunga fyrr á þessu ári sem gildir til ársins 2031 og virðist áhugi ensku félaganna því falla í grýttan jarðveg, að minnsta kosti í bili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.