Fotbolti.net
14.11.26 - 21:45
Elvar Geir Magnússon

Landsliðið mætt heim í kuldann - Ekkert frost í vellinum

Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði á flugvellinum í Plovdiv í dag.

Orri Steinn Óskarsson landsliðsfyrirliði á flugvellinum í Plovdiv í dag.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Um kvöldmatarleytið í kvöld lenti íslenska landsliðið á Keflavíkurflugvelli en liðið ferðaðist með leiguflugi frá Plovdiv í Búlgaríu. Liðið var með stigin þrjú í farteskinu. Flogið var með frændum okkar í færeyska flugfélaginu Atlantic Airways.

Þrír leikmenn duttu út úr hópnum í þessum 5-0 sigri gegn Búlgaríu; Stefán Teitur Þórðarson og Kristall Máni Ingason meiddust og Hörður Björgvin Magnússon fékk gult spjald og er kominn í bann. Þeir ferðuðust þó allir með til Íslands.

Í morgun var tilkynnt að Brynjar Ingi Bjarnason, Hjörtur Hermannsson og Sævar Atli Magnússon hefðu verið kallaðir inn í hópinn fyrir leikinn gegn Lúxemborg sem verður klukkan 17 á mánudaginn.
24 gráðu munur milli leikja íslenska liðsins
TENGT EFNI

24 gráðu munur milli leikja íslenska liðsins

Það er spáð þriggja gráðu frosti á mánudaginn en Kristinn Jóhannsson, vallarstjóri á Laugardalsvelli, segir í viðtali við Vísi að engar áhyggjur séu af stöðu vallarins þrátt fyrir veðrið. Pulsan fræga hefur verið ofan á vellinum.

„Við erum með undirhita undir grasinu sem hefur verið í hæstu stillingu í nokkrar vikur og virkar mjög vel. Það er ekkert frost í vellinum og hann er í nokkuð góðu standi, undir dúk," sagði Kristinn við Vísi.

Ísland er á toppi riðils síns í C-deild Þjóðadeildarinnar en er aðeins með tveggja stiga forskot á Eistland fyrir lokaumferð riðilsins. Á meðan Ísland leikur gegn Lúxemborg mun Eistland etja kappi við Búlgaríu.
Pulsan fræga.

Pulsan fræga.

Canon

Mynd: Instagram/laugardalsvollur

Landsliðið mætt heim í kuldann - Ekkert frost í vellinum
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.