Fotbolti.net
01.01.10 - 13:08
Hafliði Breiðfjörð

Sophia Mundy komin til Gareth hjá Atlanta (Staðfest)

Mundy í leik með Val.

Mundy í leik með Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Bandaríska stúlkan Sophia Mundy sem lék með Aftureldingu og Val hér á landi gekk nú fyrir áramót í raðir bandaríska atvinnumannaliðsins Atlanta Beat.
Þar hittir Mundy fyrir Gareth O\'Sullivan fyrrverandi þjálfara sinn hjá Aftureldingu en hún er að skipta til Atlanta frá Boston Breakers.

Hún hafði leikið í eina og hálfa leiktíð undir stjórn O\'Sulivan hjá Aftureldingu áður en hún fór til Vals á miðju tímabili 2008.

,,Sophia er sterkur sóknarmaður sem hefur mikiinn hraða, tækni og yfirvegun á boltann,\" sagði O\'Sullivan á vef bandaríska félagsins.

,,Ég þjálfaði hana í tvær leiktíðir á Íslandi, og tel að hún muni standa sig mjög vel hjá Atlanta Beat.\"

Einnig var rætt við hana sjálfa á vef félagsins þar sem hún sagði: ,,Ég þekki Gareth sem þjálfara og ber mikla virðingu fyrir honum. Ég hlakka til að hefja nýtt tímabili með nýju liði í nýjum bæ, og get ekki beðið eftir að byrja að spila á velli félagsins.\"

Heimild: Vefur Atlanta

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.