Everton vann Southampton 1-0 á Goodison Park í kvöld er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni en Richarlison skoraði eina mark leiksins.
Markið kom eftir sendingu frá Gylfa Þór Sigurðssyni á 9. mínútu en Jordan Pickford átti langa sendingu fram völlinn á Dominic Calvert-Lewin sem kom boltanum áfram á Gylfa.
Hann var fljótur að átta sig á náði að renna boltanum inn fyrir vörn Southampton og á Richarlison sem skoraði örugglega.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Athugasemdir