Bruno áfram á Old Trafford - Leao orðaður við Man Utd - Milan til í að skoða skipti
banner
   fös 01. maí 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Leeds berst við Dortmund og félög frá Sádi-Arabíu
Mynd: EPA
Enska úrvalsdeildarfélagið Leeds United hefur mikinn áhuga á miðverðinum eftirsótta Danilho Doekhi sem rennur út á samningi í sumar.

Doekhi er 27 ára Hollendingur sem hefur verið í lykilhlutverki hjá Union Berlin undanfarin ár og hefur ekki misst af einni einustu mínútu í þýsku deildinni síðan 28. janúar 2024.

Framtíð Doekhi er óljós en hann ætlar ekki að skrifa undir nýjan samning við Union. Það verður þó ekki auðvelt fyrir Leeds að klófesta varnarmanninn þar sem Borussia Dortmund hefur áhuga á honum alveg eins og sádi-arabísku stórveldin.

Doekhi spilaði 13 leiki fyrir yngri landslið Hollands en á eftir að taka stökkið upp í A-landsliðið, enda er samkeppnin um sæti í hóp gríðarleg.
Slapp
banner
banner
banner