01.06.12 - 10:13
Magnús Már Einarsson
Brendan Rodgers tekinn við Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers hefur formlega verið ráðinn stjóri Liverpool en hann var kynntur til sögunnar á fréttamannafundi í morgun.
Rodgers tekur við Liverpool af Kenny Dalglish sem var rekinn úr starfi á dögunum.
Roberto Martinez, stjóri Wigan, var einnig orðaður við starfið en Tom Werner formaður Liverpool segir að Rodgers hafi verið sá eini sem félagið gerði tilboð.
Rodgers hefur stýrt Swansea frá því árið 2010 en hann var áður stjóri Reading í stuttan tíma sem og stjóri Watford tímabilið 2008/2009.
Þessi 39 ára gamli Norður-Íri stýrði einnig vara og unglingaliði Chelsea á sínum tíma.