15.11.26 - 13:45
Brynjar Ingi Erluson
Enginn kemst með tærnar þar sem Gyökeres hefur hælana

Gyökeres er óstöðvandi í Þjóðadeildinni

Mynd: EPA

Gyökeres er óstöðvandi í Þjóðadeildinni

Mynd: EPA
Sænski framherjinn Viktor Gyökeres skoraði tvö mörk í 3-2 sigri Svía á Bosníu og Hersegóvínu í B-deild Þjóðadeildarinnar í gær og tryggði sænska landsliðinu þar með sæti í A-deild fyrir næstu keppni.

TENGT EFNI
Þjóðadeildin: Gyökeres með tvennu - Heimir tapaði á meginlandinu
Bæði mörk Gyökeres komu af vítapunktinum og er hann nú kominn með 27 mörk fyrir sænska landsliðið.
Mörkin voru þó merkileg fyrir fleiri sakir því Gyökeres hefur nú skorað í átta leikjum í röð í Þjóðadeildinni og heldur því áfram að bæta eigið met sem hann setti í síðasta mánuði.
Engum öðrum leikmanni hefur tekist að skora í svo mörgum leikjum í röð í sögu keppninnar. Harry Kane kemur næstur með sex leiki, Aleksandar Mitrovic og Benjamin Sesko hafa skorað í fimm leikjum í röð og Erling Haaland er í fimmta sæti með fjóra leiki.
Gyökeres vonast til að frábær frammistaða hans með sænska landsliðinu skili honum stærra hlutverki hjá Englandsmeisturum Arsenal, en eins og staðan er í dag er hann á eftir Kai Havertz í goggunarröðinni.

Viktor Gyokeres becomes the first player to score in EIGHT consecutive Nations League matches ?
— Premier League (@premierleague) November 14, 2026
The Arsenal striker converted two penalties as Sweden beat Bosnia & Herzegovina 3-2 ???? https://t.co/sWd41dvkaJ