Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
banner
fimmtudagur 21. mars
EM umspilið
fimmtudagur 14. mars
Lengjubikar karla - Undanúrslit
sunnudagur 10. mars
Enska úrvalsdeildin
þriðjudagur 27. febrúar
Landslið kvenna - Þjóðadeild umspil
föstudagur 23. febrúar
fimmtudagur 1. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
fimmtudagur 18. janúar
Vináttulandsleikur
sunnudagur 14. janúar
fimmtudagur 14. desember
Sambandsdeild UEFA
föstudagur 8. desember
Úrslitaleikur Bose-mótsins
þriðjudagur 5. desember
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 4. desember
Umspil fyrir HM U20
föstudagur 1. desember
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 30. nóvember
Sambandsdeild UEFA
sunnudagur 19. nóvember
Undankeppni EM
fimmtudagur 9. nóvember
Sambandsdeild UEFA
þriðjudagur 31. október
Landslið kvenna - Þjóðadeild
föstudagur 27. október
fimmtudagur 26. október
Sambandsdeild UEFA
miðvikudagur 18. október
Forkeppni Meistaradeildar kvenna
þriðjudagur 17. október
Undankeppni EM
föstudagur 13. október
þriðjudagur 10. október
Meistaradeild kvenna
sunnudagur 8. október
Besta-deild karla - Efri hluti
fimmtudagur 5. október
Sambandsdeild UEFA
mánudagur 2. október
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 1. október
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 29. september
Fótbolti.net bikarinn
þriðjudagur 26. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
mánudagur 25. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 24. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
laugardagur 23. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
Fótbolti.net bikarinn
föstudagur 22. september
Landslið kvenna - Þjóðadeild
fimmtudagur 21. september
Sambandsdeildin
miðvikudagur 20. september
Besta-deild karla - Efri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Neðri hluti
mánudagur 18. september
fimmtudagur 14. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
miðvikudagur 13. september
þriðjudagur 12. september
Undankeppni EM U21 landsliða
mánudagur 11. september
Undankeppni EM
sunnudagur 10. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
þriðjudagur 19. mars
CHAMPIONS LEAGUE: Playoffs - Women
Ajax W - Chelsea W - 17:45
SL Benfica W - Lyon - 20:00
mán 01.jún 2020 17:40 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 7. sæti: KA

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Akureyringar endi í 7. sæti í Pepsi Max-deildinni í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. KA endar í sjöunda sæti ef spáin rætist.

Hallgrímur Mar Steingrímssson er lykilmaður.
Hallgrímur Mar Steingrímssson er lykilmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Almarr Ormarsson.
Almarr Ormarsson.
Mynd/Hulda Margrét
Marvkörðurinn Aron Dagur Birnuson.
Marvkörðurinn Aron Dagur Birnuson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Sigurgeirsson.
Ásgeir Sigurgeirsson.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Nökkvi Þeyr Þórisson.
Nökkvi Þeyr Þórisson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óli Stefán Flóventsson.
Óli Stefán Flóventsson.
Mynd/Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. KA 55 stig
8. Fylkir 49 stig
9. ÍA 44 stig
10. HK 43 stig
11. Grótta 20 stig
12. Fjölnir 14 stig

Um liðið: KA náði á endanum að toga sig upp í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar með því að klára mótið með góðu lokaskriði. En fram að því hafði liðið ekki gert mjög merkilega hluti. Tímabilið var ansi sveiflukennt og eins og hefur einkennt KA undanfarin ár voru lykilmenn að detta út vegna meiðsla.

Þjálfari - Óli Stefán Flóventsson: Er að fara inn í sitt annað tímabil sem þjálfari KA og hann fer inn í þetta tímabil undir talsverðri pressu. Fyrir norðan hefur hann ekki náð að vinna alla KA-menn á sitt band og krafan er á að liðið taki næsta skref. Hann hefur verið að reyna þróa liðið í 3-5-2 leikkerfi en á alveg eftir að sannfæra liðið og stuðningsmenn um að það henti leikmannahópnum.

Styrkleikar: KA hefur talsverð einstaklingsgæði í leikmannahópnum og leikmenn eins og Ásgeir Sigurgeirsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson geta búið eitthvað til upp á sitt einsdæmi. Föst leikatriði ættu að vera vopn hjá Akureyrarliðinu og ótrúlega löng innköst nýja danska varnarmannsins Mikkel Qvist stórhættuleg. Mikill metnaður er hjá félaginu og kröfurnar miklar.

Veikleikar: Áður en fótboltinn var stöðvaður vegna faraldursins litu KA-menn hrikalega illa út gegn Víkingum í Lengjubikarnum. Liðið á það til að vera í erfiðleikum með að finna taktinn og meiðslavandræði algeng. Breiddin í hópnum er ekki merkileg. Það er mikill missir að Elfar Árni Aðalsteinsson spilar ekki í sumar vegna meiðsla.

Lykilmenn: Almarr Ormarsson og Hallgrímur Mar Steingrímsson. Almarr er kominn með fyrirliðabandið en hann er mikill keppnismaður og drífandi á miðjunni. Hallgrímur Mar býr yfir miklum gæðum og spyrnur hans gefa liðinu ýmsa möguleika.

Gaman að fylgjast með: Reynsluboltinn Hallgrímur Jónasson segist gíraður inn í nýtt tímabil en meiðsli hömluðu honum í fyrra. Hann er orðinn spilandi aðstoðarþjálfari og ef hann nær sínu besta fram er það gulls ígildi fyrir KA. Á Akureyri eru menn spenntir fyrir því að sóknarleikmaðurinn ungi Nökkvi Þeyr Þórisson taki næsta skref og gæti orðið ákveðinn X-faktor í sumar.

Spurningarnar: Verður KA fast í miðjumoði í sumar? Hvað skorar liðið mörg mörk eftir löng innköst? Hversu sárt munu þeir sakna Elfars Árna?

Völlurinn: KA spilar heimaleiki sína á Akureyrarvelli sem er með stúku fyrir 715 manns í sæti. Vallarflöturinn er barn síns tíma og oft í slæmu ástandi. Mörgum liðum þykir ekki sérlega skemmtilegt að fara norður til að spila á þessum velli.

Þjálfarinn segir - Óli Stefán Flóventsson
„Þessi spá kemur í sjálfu sér lítið á óvart út frá umræðu og hvernig liðin hafa verið að styrkja sig. Ég átti von á því að vera einhvers staðar á þessum slóðum. Það er alltaf þannig að það eru sterk lið og svo lið þar á eftir, en reynsla síðustu ára er þannig að eitthvað af þeim liðum sem spáð topp fimm-sex veldur vonbrigðum og eitthvað af liðunum fyrir neðan gerir betur en menn eiga von á. Í grunninn eru heildarmarkmið okkar að halda áfram að byggja ofan á þann stöðugleika sem KA hefur gert, og bæta við það. Svo er náttúrulega alltaf grunnmarkmið að gera betur en í fyrra."

Komnir:
Gunnar Örvar Stefánsson frá Magna
Jibril Abubakar frá Midtjylland á láni
Mikkel Qvist frá Horsens á láni
Rodrigo Gomes Mateo frá Grindavík
Sveinn Margeir Hauksson frá Dalvík/Reyni

Farnir:
Alexander Groven til Noregs
Callum Williams hættur
Daniel Cuerva til Tælands
Ólafur Aron Pétursson í Þór
Iosu Villar til Spánar
Sæþór Olgeirsson í Völsung
Torfi Tímóteus Gunnarsson í Fjölni (Var á láni)

Fyrstu fimm leikir KA:
14. júní ÍA - KA
20. júní KA - Víkingur
28. júní Stjarnan - KA
5. júlí KA - Breiðablik
9. júlí Fylkir - KA

Sjá einnig:
Hin hliðin - Nökkvi Þeyr Þórisson

Leikmenn KA sumarið 2020:
Aron Dagur Birnuson
Kristijan Jajalo
Adam Örn Guðmundsson
Almarr Ormarsson
Andri Fannar Stefánsson
Angantýr Máni Gautason
Birgir Baldvinsson
Bjarni Aðalsteinsson
Brynjar Ingi Bjarnason
Gunnar Örvar Stefánsson
Hallgrímur Jónasson
Hallgrímur Mar Steingrímsson
Hrannar Björn Steingrímsson
Jibril Abubakar
Mikkel Qvist
Nökkvi Þeyr Þórisson
Ottó Björn Óðinsson
Rodrigo Mateo
Steinþór Freyr Þorsteinsson
Sveinn Margeir Hauksson
Áki Sölvason
Ýmir Már Geirsson
Þorri Mar Þórisson
Þorsteinn Már Þorvaldsson

Spámennirnir: Arnar Daði Arnarsson, Benedikt Bóas Hinriksson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Gunnar Birgsson, Hafliði Breiðfjörð, Ingólfur Sigurðsson, Magnús Már Einarsson, Sverrir Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson
Athugasemdir
banner
banner
banner