Neville hæstánægður með frammistöðu Englands

Marc Guehi, varnarmaður Englands.

Mynd: EPA

Neville í landsleik á sínum tíma.

Mynd: EPA

Marc Guehi, varnarmaður Englands.

Mynd: EPA
Margir furða sig á ummælum Gary Neville sem segir að frammistaða Englands gegn Gana í gær hafi verið heilsteypt og góð.
England var 78,8% með boltann sem er það hæsta sem lið hefur verið með á HM án þess að skora, bit vantaði í sóknaraðgerðirnar. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

TENGT EFNI
HM: Englendingar jarðtengdir í Boston
„Ég naut leiksins. Ég mun fá harkalega gagnrýni fyrir þetta en hluti af mér telur að frammistaðan hafi verið betri en gegn Króatíu. Ef þú blandar saman frammistöðunni úr þessum tveimur leikjum þá færðu líklega mjög öfluga útkomu," segir Neville.
„Ég var hrifinn af því hvernig England stjórnaði leiknum á stórum köflum, það var ekki sama kaos og í leiknum gegn Króatíu. Marc Guehi og Ezri Konsa voru öflugir og það sköpuðust möguleikar úr föstum leikatriðum."
Harry Kane, fyrirrliði Englands, klúðraði dauðafæri í leiknum en hann hefði getað orðið markahæsti Englendingur HM sögunnar.
„Maður trúði því ekki að hann myndi klúðra svona tækifæri. hann getur ekki misnotað svona færi. En það er margt sem við getum tekið úr leiknum varnarlega."