01.07.04 - 20:48
Magnús Már Einarsson
Rommedahl til Charlton (Staðfest)

Rommedahl með búning Charlton í dag.

Rommedahl með búning Charlton í dag.

Charlton hefur keypt danska kantmanninn fljóta Dennis Rommedahl frá PSV Eindhoven á tvær milljónir punda. Hinn 25 ára gamli Rommedahl sem að hefur hlaupið hundrað metrana á 10,2 sekúndum hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Charlton.
Charlton á ágætis pening til leikmannakaupa núna eftir að hafa selt Scott Parker til Chelsea á ellefu milljónir punda í byrjun árs. Rommedahl styrkir liðið mjög en hann á 45 landsleiki að baki með Dönum og hefur skorað í þeim níu mörk.
Rommedahl byrjaði feril sinn hjá Lyngby en fór til PSV árið 1996. Hann hefur verið fastamaður hjá PSV frá árinu 1997 og skorað 29 mörk í 161 leik.
"Þeir höfðu góð áhrif á mig. Mér líkar hvernig þeir spila í Englandi þar sem hraðinn er mun meiri. Ég held að möguleikarnir fyrir þetta ár og næsta séu góðir eftir að hafa enda í sjöunda sæti á síðasta tímabili, kannski komumst við í Uefa keppnina" Sagði kappinn í dag.