Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. júlí 2022 19:00
Elvar Geir Magnússon
Richarlison kveður: Elska ykkur Everton-menn
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Richarlison var í morgun staðfestur sem leikmaður Tottenham.

Hann kveður Everton og stuðningsmenn félagsins með færslu á Instagram.

„Það er virkilega erfitt að kveðja stað sem hefur orðið að heimili mínu og stuðningsmenn sem hafa tekið það vel á móti mér að það var eins og ég væri einn af þeim," skrifaði Richarlison.

Hann segir að félagið hafi komið vel fram við sig og engin orð geti lýst þeirri ást sem hann beri til félagsins.

„VIð sjáumst á leiðinni. Ég elska ykkur Everton-menn!"


Athugasemdir
banner
banner
banner