Fotbolti.net
01.08.04 - 21:54

Zé Maria til Inter (Staðfest)

Zé Maria er hér til hægri

Zé Maria er hér til hægri

Canon
Inter eru heldur betur að styrkja sig þessa dagana en þeir hafa nú gengið frá kaupunum á brasilíska bakverðinum Zé Maria frá Perugia. Hann kostar Inter rúm milljón pund og í leiðinni keyptu þeir Perugia út úr Massimiliano Fusani. Það er nokkuð algengt að lið deili leikmanni en hann hefur aldrei spilað fyrir Inter.
Zé Maria er orðinn 31 árs gamall og skrifaði hann undir tveggja ára samning við Milanó liðið. Hann er áttundu kaup Inter í sumar en áður höfðu þeir keypt Giuseppe Favalli, Nicolas Andrés Burdisso, Lampros Choutos, Edgar Davids, Juan Sebastián Verón , Esteban Cambiasso og Sinisa Mihajlovic.

Ljóst er að Inter liðið ætlar sér stóra hluti og spennandi verður að sjá hvernig gengur að púsla öllum þessum nöfnum saman í 11 manna lið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.