Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 01. ágúst 2021 14:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arsenal vill halda Willock
Mynd: Getty Images
Joe Willock sló í gegn á láni hjá Newcastle frá Arsenal á síðustu leiktíð en hann skoraði í sjö síðustu leikjum deildarinnar.

Newcastle hefur áhuga á að fá hann afutr á láni og gerðu tilboð í leikmanninn. Tilboðið hljóðar þannig að Newcastle borgar meira með honum en þeir gerðu á síðustu leiktíð.

Það er talið að frammistaða Willock hjá Newcastle hafi heillað Arsenal og að liðið vilji halda honum innan félagsins á komandi tímabili.

Willock er 21 árs en hann lék sinn fyrsta leik fyrir Arsenal árið 2017. Hann lék 29 leiki í deildinni tímabilið 2019/20.
Athugasemdir
banner
banner