Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 01. ágúst 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England bætti markamet Þýskalands á EM
Mynd: EPA
Enska kvennalandsliðið varð Evrópumeistari í gær þegar liðið lagði Þýskaland af velli 2-1 eftir framlengdan leik á Wembley.

England vann þar með sinn fyrsta Evróputitil. Liðið var alveg magnað á mótinu en liðið bætti meðal annars met yfir flest mörk skoruð á Evrópumóti.

England skoraði 22 mörk en liðið bætti þar með met Þýskalands sem var 21 mark á EM 2019. Þýskaland er í 2-4 sæti á þessum lista en liðið skoraði 15 mörk árið 2005 og 14 mörk á mótinu sem var að ljúka.

Ella Toone skoraði fyrsta mark leiksins en það var mark númer 500 á EM kvenna í sögunni.

Eins og fram kom í gær mættu rúmlega 87 þúsund manns á Wembley sem er áhorfendamet á leik á EM bæði hjá körlum og konum.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner