01.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Roque Junior til Leeds United. (Staðfest)

Roque Junior í baráttu við Michael Owen.


Roque Junior í baráttu við Michael Owen.

Varnarmaðurinn sterki Roque Junior mun leika með Leeds United út þetta tímabil á lánssamningi frá AC Milan. Junior sem varð 27 ára í gær var í heimsmeistaraliði Brasilíumanna seinasta sumar og í liði AC Milan sem sigraði Meistaradeildina í fyrra. Hann getur spilað sem miðvörður eða vinstri bakvörður en Leeds vann baráttuna við Bolton um kappann.
