01.09.03 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Bakayoko til Osasuna. (Staðfest)

Ibrahima Bakayoko.


Ibrahima Bakayoko.

Sóknarmaðurinn knái Ibrahima Bakayoko frá Fílabeinsströndinni hefur skrifað undir tveggja ára samning við Spænska liðið Osasuna. Bakayoko sem er 26 ára hefur spilað seinustu fjögur tímabil með Olympique Marseille. Hann hefur skorað 52 mörk á þessum fjórum tímabilum í Frakklandi. Hann hafnaði nýjum tveggja ára samningi við Marseille og fór til Osasuna.
