Fotbolti.net
01.09.03 - 00:00
Elvar Geir Magnússon

Sorin kominn til PSG (Staðfest)

Argentínski landsliðsmaðurinn Juan Pablo Sorin hefur verið lánaður til Paris St Germain frá Barcelona eitt leiktímabil. Sorin er 27 ára varnarmaður sem er enn samningsbundinn brasilíska félaginu Cruzeiro sem lánaði hann til Lazio og Barcelona seinasta tímabil. Frank Rijkaard þjálfari Börsunga ákvað í lok lánstímans að kaupa Sorin ekki. Sorin hefur leikið 41 leik fyrir Argentínu og stóðst læknisskoðun hjá PSG í gær. Franska liðið mun þv



í hafa tvo argentínska varnarmenn en fyrir hjá liðinu er Gabriel Heinze.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.